Fréttir & tilkynningar

Framundan hjá Eir

Eir - 06. febrúar 2012

Það er heldur betur nóg um að vera og margt skemmtilegt framundan.

 Núna um helgina munu um 40 Eirlingar safna visku í Stóru vísindaferðinni.

Föstudaginn 17. febrúar ætla öll deildarfélögin að skella sér saman í vísindaferð í Símann þar sem boðið verður upp á léttar veitingar og eitthvað gott til að væta kverkarnar, tími, staðsetning og skráning auglýst síðar.

Árshátíð FSHA verður haldin með prompi og prakt í Sjallanum laugardaginn 3.mars. Þar mun Þórhallur úr Mið-Ísland og morgunþættinum Magasín skemmta fólki og stórhljómsveitin SS-sól slá upp dansiballi. Þema kvöldins er 50´s svo það er um að gera að finna sér dress og setja bylgjur í lokkana. Upplýsingar um tíma og verð koma síðar.

Pubquis, kósýsund, fjölskyldusund og vísindaferð munu svo vera á dagskrá Eirar og ef þú hefur skemmtilega hugmynd þá er um að gera að senda okkur póst á eir@fsha.is

Verið dugleg að fylgjast með auglýsingum framundan svo þið missið ekki af stuðinu :)

Meira

Sundferð í boði Eirar

Eir - 29. janúar 2012

Eir býður meðlimum sínum í kósý sundferð næsta fimmtudagskvöld á Þelamörk um kl. 20:00 ;) Allir að mæta og munið eftir HA kortunum ;)

Meira

Engin vísó

Eir - 26. janúar 2012

Því miður var ekki nægilegur áhugi nemenda fyrir vísindaferðinni sem átti að vera á morgunn svo henni hefur verið aflýst. Vonum að meiri undirtekir og þátttaka verði næst.

Meira

Fréttasafn

2  3  4  5  6  7  8  9  10  Næsta >

Fréttir

Fréttasafn