Fréttir & tilkynningar
Nýnemakvöld
Eir - 25. ágúst 2010
Nýnemakvöld Eirar verður haldið fimmtudagskvöldið 26. ágúst á efri hæð Kaffi Akureyri. Mæting er klukkan 20:00. Hvetjum við flesta til að mæta og eiga góða kvöldstund með okkur. Við mundum bjóða uppá léttar veitingar ásamt sumarlegri bollu og bjór. Einnig ætlum við að vera með létta leiki og svo enda á því að kjósa tengiliði 1 árs nema í hjúkrunarfræði og iðjuþjálfun. Tengiliðirnir verða tenging 1 árs við nemendafélagið og auðveldar ykkur að fylgjast með hvað er á döfinni hjá okkur og jafnvel koma einhverju áleiðis til okkar. Ef þið hafið áhuga á því að vera með okkur í nemendafélaginu í vetur endilega bjóðið ykkur fram annað kvöld :)
Klukkan 11 er svo formlegri dagskrá okkar lokið og Rúnar Eff trúbador mun byrja að spila á neðri hæð Kaffi Ak :) Hlökkum til að sjá ykkur sem flest annað kvöld :)
Einnig endilega addið Eir sem vin á facebook :)
kveðja, stjórnin
Athugasemdir
Fréttir
-
Framundan hjá Eir
06. febrúar 20:27
-
Sundferð í boði Eirar
29. janúar 21:59
-
Engin vísó
26. janúar 19:37







