Fréttir & tilkynningar

Vísindaferð og kynning á hjálpartækjum ástarlífsins...

Eir - 09. september 2011

Vísindaferð og kynning á hjálpartækjum ástarlífsins

EIR býður nemum sínum í vísindaferð og kynningu á hjálpartækjum ástarlífsins laugardaginn 17. september. Hver hefur ekki gaman af því að drekka bjór og fræðast um allt það sem við kemur kynlífi í góðra vina hópi?

Vísindaferð í Vífilfell (hjá Hagkaup) kl. 17:30 – ca 19:00. Mæting stundvíslega á bílaplanið innan við girðinguna.

Kynning á hjálpartækjum ástarlífsins á Pósthúsbarnum hefst klukkan 21:30, húsið opnar klukkan 21:00. Kynning á því vinsælasta í tækjum og tólum ástarlífsins frá Adam&Evu. Þegar kynningu er lokið verður hægt að skoða það sem í boði er og versla....því miður verður ekki hægt að máta ;)

Svo tekur DJ hússins við og við tjúttum saman fram á morgun J

Fljótandi veitingar í boði EIR á meðan birgðir endast og frábær tilboð á barnum!

Skráning á eir@fsha.is eða senda skilaboð á facebook, það verður að taka fram hvort þú komir í vísindaferð, á Pósthúsbarinn eða bæði sem er auðvitað viturlegast

Skráningu lýkur föstudaginn 16. sept. kl 12:00

                       Hlökkum til að sjá ykkur hress og kát                        

Nauðsynlegt að hafa HA kortið með sér

 

Til baka

Athugasemdir

Fréttir

Fréttasafn