Fréttir & tilkynningar

Sprellmót HA föstudaginn 7.október

Eir - 05. október 2011

Nú er dagskráin fyrir Sprellmótið komin.
 
Eir ætlar að hittast á eftir hæðinni á Amor kl.14:00. Þar verður andlitsmáling og baráttusöngvar Eirar æfðir. Á Amor mun Eir bjóða upp á bjór og svo verður barinn opin fyrir þá sem vilja :)
 
Eir mun svo bjóða upp á bjór á meðan birgðir endast á torginu og í Oddvitanum. Taka má með sér áfengi inn á Oddvitan um daginn.
 
Félögin mæta á slaginu kl 15:00 niður á ráðhústorg í búningum sínum og þá hefst hvatningakeppnin og skiptir öllu máli að framkalla sem mestu læti. Hópurinn gengur síðan saman niður á gamla oddvitan kl 16:00 en þá verður bjór- og skotboðshlaupið, kappátið og reipitog. Eftir að keppni lýkur er gert smá „íþróttahlé” fram til kl 21:00 en þá heldur keppnin áfram á oddvitanum en þá er söngkeppnin og beerpong keppnin. Hvetjum sem flesta til að mæta og taka þátt í keppnunum eða hvetja sína deild til sigurs. Í launum er hinn sívinsæli Sprellmótsbikar og verður hann afhentur að lokinni beerpong keppninni. Um kvöldið ætlar FSHA að bjóða upp á bjór en einnig verða góð tilboð á aðra drykki. Þegar kútarnir okkar klárast verður auðvitað bjór einnig á tilboðsverði.

Hlökkum til að sjá sem flesta,
 
Stjórnin.

Til baka

Athugasemdir

Fréttir

Fréttasafn