Fréttir & tilkynningar

Upphitun fyrir borgarferðina

Eir - 23. janúar 2012

VÍSÓ...VÍSÓ...VÍSÓ OG HÚLLÚMHÆ!

Föstudaginn næstkomandi, þann 27. janúar ætlar Eir að hita upp fyrir Stóru vísindaferðina og skella sér saman í litla krúttlega vísindaferð í Arion banka þar sem boðið verður upp á léttar veitingar. Þegar peningafræðslunni er lokið munum við tölta yfir á Amor og fara í pubquis þar sem glæsilegir vinnigar verða í boði fyrir vinningsliðið og tapliðið. 

Mæting klukkan 17:30 í Arion banka í Geislagötu 5, hliðina á Borgarbíó. 

Skráning sendist á eir@fsha.is fyrir miðnætti fimmtudaginn 26. jan, endilega að taka fram hvort þið komið í bæði. 

Hlökkum til að sjá ykkur, kveðja skvísunar í Eir :)

Til baka

Athugasemdir

Fréttir

Fréttasafn