Lög Eirar

Lög Eirar

Lög Eirar, félags heilbrigðisnema við Háskólann á Akureyri

 

I.Nafn, aðsetur og tilgangur.

1. gr.Félagið heitir Eir og er félag heilbrigðisnema við Háskólann á Akureyri. Félagið er með kennitöluna 670291-1389 og er undirfélag FSHA. Aðsetur félagsins er  í húsakynnum Háskólans á Akureyri og er varnaþing þess á Akureyri.

2. gr.Félagar eru allir þeir sem innritaðir eru í heilbrigðisdeild Háskólans á Akureyri, nema þeir segi sig formlega úr því.

3. gr.Markmið félagsins eru:

a) Að gæta sameiginlegra hagsmuna nemenda heilbrigðisdeildar og vera málsvari þeirra, innan skólans sem utan.

b) Að vinna að aukinni samheldni meðal nemenda.

c) Að stuðla að góðri samvinnu við önnur deildarfélög innan skólans.

d) Að stuðla að góðri samvinnu við önnur félög hjúkrunarfræðinema hér á landi sem og erlendis.

4. gr.leysist félagið upp renna öll réttindi og skyldur þess til FSHA.

II.Aðalfundur og kosningar.

5. gr.Aðalfundur hefur æðsta vald í málefnum félagsins. Aðalfund skal halda innan tveggja vikna eftir aðalfund FSHA. Til fundarins skal boða á tryggilegan hátt, með auglýsingu í húsnæði deildarinnar og á heimasíðu félagsins, með minnst sjö daga fyrirvara, og er hann þá lögmætur.

a. Ef aðalfundur telst ekki löglegur skal boða til nýs aðalfundar að viku liðinni og telst sá fundur löglegur.

6. gr.Dagskrá aðalfundar skal vera sem hér segir:

  1. Fundur settur.
  2. Skipun kjörnefndar.
  3. Skýrsla fráfarandi stjórnar lesin upp.
  4. Reikningar lagðir fram.
  5. Lagabreytingar teknar fyrir.
  6. Kosning stjórnarmeðlima:
    1. Kosning formanns.
    2. Kosning varaformanns.
    3. Kosning Gjaldkera.
    4. Kosning Ritara.
    5. Kosning meðstjórnanda.
  7. Kosning í önnur embætti:
    1. Kosning fulltrúa í skemmtinefd FSHA.
    2. Kosning fulltrúa í íþrótta- og fjölskyldunefnd FSHA.
    3. Kosning fulltrúa á deildafundi úr annari deild en formannsins.
  8. Önnur mál.
  9. Stjórnarskipti.
  10.  Fundi slitið.

7. gr.Hver félagsmaður hefur atkvæðisrétt og kjörgengi. Einfaldur meirihluti skal ráða niðurstöðum kosninga á aðalfundi.

8. gr.Stjórnarmeðlimir eru allir kosnir í sérstakri kosningu. Kosið er sér í hvert embætti fyrir sig. Kosning til stjórnar, sem og önnur embætti, skal fara fram með leynilegum atkvæðagreiðslum á aðalfundi félagsins. Þeir aðilar sem kosnir eru skulu vera bæði úr hjúkrunarfræðideild og iðjuþjálfunarfræðideild.

a. Tengiliðir fyrsta árs skulu kosnir á sérstökum nýnemadegi í byrjun hverjar haustannar og skal annar þeirra koma úr iðjuþjálfun og hinn úr hjúkrunarfræði.

9. gr.Falli atkvæði jafnt við kjör skal endurtaka kosningu milli viðkomandi frambjóðenda og falli atkvæði enn jafnt ræður hlutkesti. Sé aðeins einn frambjóðandi í kjöri skoðast hann sem sjálfkjörinn án kosninga.

10. gr.Kjörnefnd skipuð þremur nemendum á aðalfundi skal annast skipulag og framkvæmd kosninga.

11. gr. Fráfarandi stjórn skal funda með nýrri stjórn Eirar innan við viku frá aðalfundi. Fráfarandi stjórn skal á þeim vettfangi skila af sér öllum gögnum sem og eigum félagsins og setja nýja stjórn inn í mál félagsins.

III. Stjórn

12. gr.Í stjórn félagsins skulu sitja sjö heilbrigðisnemar sem uppfylla skilyrði 2. gr. um félagaaðild.

            a. Embætti innan stjórnar Eirar eru eftirfarandi:

                        i. Formaður

                        ii. Varaformaður

                        iii. Ritari

                        iv. Gjaldkeri

                        v. Meðstjórnandi

                        vi. Tengiliður fyrsta árs hjúkrunarfræðinema

                        vii. Tengiliður fyrsta árs iðjuþjálfunarfræðinema

b. Stjórn Eirar situr stjórnarfundi og fer með æðsta ákvörðunarvald félagsins á milli aðalfunda.

c. Stjórninni er heimilt að kalla á sinn fund fulltrúa Eirar í nefndum og ráðum. Fulltrúar þessir hafa ekki atkvæðisrétt á stjórnarfundum, en hafa þó málfrelsi og tillögurétt.d. Fulltrúar Eirar í nefndum og ráðum skulu miðla upplýsingum til stjórnar Eirar.

e. Stjórn Eirar skal útnefna einn fulltrúa hjúkrunarfræðinema til setu í náms- og matsnefnd hjúkrunarfræðideildar og einn fulltrúa iþjuþjálfunarfræðinema til setu í náms- og matsnefnd iþjuþjálfunarfræðideildar.

13. gr.Hlutverk stjórnarmeðlima eru eftirfarandi:

a) Formaður

i. Formaður kemur fram fyrir hönd félagsmanna út á við. Hann skal boða til félags- og stjórnarfunda svo oft sem þess gerist þörf og verður þá eða skipar fundarstjóra.

ii. Formaður úthlutar verkefnum til annara stjórnarmeðlima og geta þeir ekki skorast undan þeim nema með leyfi formanns.

iii. Formaður skal sjá til þess að lög félagsins séu uppfærð í samræmi við lagabreytingar sem samþykktar eru á aðalfundi.

iv. Formaður hefur yfirumsjón með framkvæmdum á vegum félagsins og ber hann endanlega ábyrgð á málefnum þess.

v. Formaður hefur umsjón með tölvupóstfangi félagsins.

vi. Formaður situr deildafundi (ásamt fulltrúa þeirrar deildar sem formaðurinn er ekki í) og deildarfundi Heilbrigðisvísindasviðs fyrir hönd nemenda og er fulltrúi Eirar í framkvæmdaráði FSHA.

b) Varaformaður

i. Varaformaður skal vera formanni innan handar í öllum málum og gegna starfi formanns í forföllum hans.

ii. Ef varaformaður getur ekki gegnt því hlutverki af einhverjum ástæðum skal annar stjórnarmeðlimur taka hans stað.

c) Ritara ber að skrá fundargerðir stjórnarfunda og færa þær inn á heimasíðu félagsins svo nemendur hafi greiðan aðgang að þeim. 

i. Ritari er umsjónarmaður heimasíðu félagsins.

d) Gjaldkeri hefur yfirumsjón með fjárreiðum allra nefnda og ráða á vegum félagsins, einnig hefur hann umsjón með öllum fjárreiðum félagsins í samráði við stjórn. Þarf hann að standa skil á fjárreiðum félagsins á aðalfundi þess. Gjaldkera er skylt að skila nýrri stjórn löglegu bókhaldi á kynningarfundi með nýjum gjaldkera.

e) Meðstjórnandi sér um undirbúning og skipulagningu félagsstarfs ásamt öðrum stjórnarmeðlimum og sér um samskipti við fulltrúa skemmtinefndar.

f) Tengiliðir fyrsta árs taka þátt í undirbúningi og skipulagningu félagsstarfs. Jafnframt skulu þeir halda uppi öflugum og góðum tengslum milli stjórn Eirar og nemanda á sínu fyrsta ári.14. gr.Allir stjórnarmeðlimir eru bundnir trúnaði varðandi það sem þeir kunna að heyra í félagsstarfi sínu er snertir mál einstakra nemenda.

15. gr.Stjórn skal gæta hagsmuna allra nemenda innan heilbrigðisvísindasviðs og mismunun er með öllu óheimil.

16. gr.Á félagsfundi getur félagsmaður borið upp vantraust á meðlim eða meðlimi stjórnar.  Tillaga hans þarf að hljóta samþykki 2/3 fundarmanna til að hún nái fram að ganga enda sé a.m.k. tíundi hluti félagsmanna á félagsfundinum.

17. gr.Segi stjórnarmaður af sér, eða ef samþykkt er vantraust á stjórnarmann, skal stjórnin óska eftir framboðum frá félagsmönnum og kjósa svo sín á milli hvaða frambjóðandi skuli taka við stöðunni.

18. gr.Segi þrír eða fleiri stjórnarmeðlimir af sér, eða sé samþykkt vantrauststillaga á þrjá eða fleiri stjórnarmeðlimi telst stjórnin vanhæf og skal boða til félagsfundar að viku liðinni þar sem kosin verður ný stjórn.

IV. Félagsfundir

19. gr.Félagsfundur skal haldinn ef tíundi hluti félagsmanna fer skriflega fram á félagsfund eða meirihluti stjórnar. Fundurinn skal haldinn innan viku og ber stjórninni að boða til fundarins með tryggilegum hætti með minnst tveggja daga fyrirvara.

20 gr.Kynningarkvöld fyrir fyrsta árs nema skal haldið á haustdögum við upphaf skólaárs. Aðalmarkmið þess er að kjósa nýnema í stjórn félagsins, kynna námið, félag nemenda, starfsemi þess sem og nemendur innbyrðis.

V. Lagabreytingar

21. gr.Lagabreytingar skulu eingöngu eiga sér stað á aðalfundi. Til að lagabreyting öðlist gildi þarf hún að vera samþykkt af einföldum meirihluta fundarmanna sem mættir eru á löglegan aðalfund.

22. gr.Lagabreytingatillögur stjórnar skulu kynntar á sama vettvangi og aðalfundarboð sem og kynntar sérstaklega á fundinum sjálfum. Lagabreytingatillögur annarra félagsmanna má bera fram á sjálfum aðalfundinum.

23. gr. Stangist lagaákvæði í lögum Eirar á við lög FSHA skulu lög FSHA ráða. Gera skal viðeigandi lagaúrbætur á næsta aðalfundi.
Verði lögum FSHA breytt á þann veg að það hafi áhrif á starfsemi Eirar skal stjórn Eirar gera viðeigandi ráðstafanir til að mæta viðkomandi breytingum. Gera skal viðeigandi lagaúrbætur á næsta aðalfundi.

VI. Fjármál

24. gr.Stjórn félagsins hefur heimild til þess að leita fjármagns utan veggja háskólans, bæði í formi styrkja sem og samninga.

25. gr.Reikningar félagsins skulu miðast við aðalfund ár hvert.

 

VII. Önnur ákvæði

26. gr. Ákvæði til bráðabirgða

a. Breytingar á 2. gr. laga þessa eru háðar því að öll deildarfélög FSHA samþykki breytinguna á aðalfundum sínum. Lögin öðlast því ekki gildi nema samþykki allra deildarfélaga liggi fyrir. Að öðrum kosti skulu þau falla úr gildi.

27. gr.Kynningarkvöld fyrir fyrsta árs nema skal haldið á haustdögum við upphaf skólaárs. Aðalmarkmið þess er að kjósa tengiliði fyrsta árs nema í stjórn félagsins, kynna námið, félag nemenda, starfsemi þess sem og nemendur innbyrðis.

Lögum þessum verður aðeins breytt á aðalfundi.
Lög þessi öðlast þegar gildi.
Þessi lög voru samþykkt 22. mars 2012