Fréttir & tilkynningar
Árshátíð
FSHA - 03. mars 2012 19:30
Miðasala á Árshátíðina hefst þriðjudaginn 28. febrúar og stendur fram á fimmtudaginn 1. mars næstkomandi. Miðar verða seldir fyrir framan mötuneytið milli kl 11:30 og 13:30 en á fimmtudaginn verður salan færð niður í Miðborg á meðan afmælishátíðin stendur. Miðaverð er 5.000 kr. fyrir meðlimi FSHA en 6.000 kr. fyrir gesti.
Árshátíð FSHA verður að þessu sinni í stíl fimmta áratugarins og því um margt að velja hvað varðar klæðaburð. Húsið opnar kl 19:30 og hefst borðhald kl 20:15. Veislustjóri kvöldsins er Þórhallur Þórhallsson og ætlar Helgi Björns og SSSól að sjá um tónlistina langt fram eftir nóttu. Eins og undanfarin ár verður glæsilegt happdrætti með flottum vinningum, deildarfélögin sýna árshátíðarmyndböndin sín, ljósmyndari og önnur skemmtileg skemmtiatriði.
Matsetðill:
Forréttur
- Humar á spjóti (Grillaður í hvítlaukssmjöri)
- Grafinn lax (Með dillsósu á brauðsnittu)
- Kjúklingalund á teini (Með bbq-nachos hjúp)
Aðalréttur (hlaðborð)
- Kjúklingabringa cheddar ostbökuð með stökku beikon og "honey-smoke" BBQ (Fersk, jógúrtdressing)
- Lambafillet með Dijon-hunangshjúp (Rauðvínssósa)
Eftirréttur
- Súkkulaðikaka (Heimagerð, hnausþykk súkkulaðikaka með ávaxtasalati, rjómatoppi og súkkulaðihjúp)
Athugasemdir
Fréttir
-
Tilboð í líkamsrækt
28. apríl 17:00
-
Próflokagleði FSHA
25. apríl 20:44
-
Opnunartími húsnæðis í prófatíð
24. apríl 19:00








