Fréttir & tilkynningar

Tilboð í líkamsrækt

FSHA - 28. apríl 2012

hreyfisalur

Nú eru prófin komin á fullt og prófljótan farin að gera vart við sig. Þá er ekkert betra en að leggja bækurnar aðeins til hliðar og hressa sig við með endurnærandi hreyfingu.

Okkur langar að minna á þau frábæru tilboð sem standa ykkur til boða í líkamsrækt:

Hreyfisalur Háskólans á Akureyri

Í húsakynnum Háskólans er fínasta æfingaraðstaða. Þar er meðal annars að finna hlaupabretti, þrekhjól, ketilbjöllur, lóð af ýmsum gerðum og margt annað. Einnig er góð aðstaða til þess að skipta um föt og skella sér í sturtu að æfingu lokinni.

Líkamsræktin Bjarg

Líkamsræktin Bjarg hefur boðið nemendum, kennurum og starfsfólki HA árskort á 50% afslætti undanfarin 3 ár.  Áframhald verður á þessu góða boði í ár. Nú fer hver að verða síðastur að skrá sig, en skráningu lýkur í apríl.

Til þess að afslátturinn fáist þurfa 100 manns að skrifa sig á lista, likamsraekt@live.com  Skráning fyrir kaupum á korti verður í gangi í mars og allan aprílmánuð. 

Kortin verða seld á Bjargi frá 15. apríl og út maímánuð.

Ef einhver kemst ekki í mai til að kaupa en er á listanum er í lagi að kaupa kort í apríl eða júní.  Öll kortin verða virk í síðasta lagi 1. júní 2011. Ef greiðsla hefur ekki verið innt af hendi 1. júní  munum við senda viðkomadi reikning í heimabanka eða gíróseðil.  Skráning er bindandi.

Verð er 33.000kr., staðgreiðsla æskileg   

Ræktin (áður Viking Gym)

Ræktin, áður Viking Gym, býður stúdentum Háskólans á Akureyri að kaupa skólakort í ræktinaVerð fyrir 12 mánaða skólakort er 29.900 kr.Verð fyrir 9 mánaða skólakort í áskrift er 2.990 kr. á mánuðiKortin er hægt að kaupa í Sunnuhlíð 12 þar sem Ræktin er til húsa.

Meira

Próflokagleði FSHA

FSHA - 25. apríl 2012

Proflok

Stefnt er að því að halda Próflokagleði FSHA þann 9. maí næstkomandi.

Mæting er í matsalinn, Sólborg klukkan 17:30, það er að segja eftir síðasta próf þessarar vorannar. Nú munu Skemmtanastjóri og Íþrótta- og fjölskyldufulltrúi bjóða stúdentum við HA upp á grillaðar pylsur, gos og skemmtun.

Á staðnum verður fjölbreytt skemmtun sem ætti að henta öllum, hvort sem fólk vill fagna próflokunum úti í badminton, inni í Singstar eða að spila spil.

Þetta er fjölskylduvænn viðburður, þar sem áfengi verður ekki í boði, svo þeir sem ekki geta reddað sér pössun fyrir krílin geta komið með þau með sér.

Með von um að sjá sem flesta Fyrir hönd Skemmtinefndar FSHA, Elín Birna Fyrir hönd Íþrótta- og Fjölskyldunefndar, Arnar

 

 

FSHA’s End of Semester Celebration 2012

The plan is to host FSHA’s End of Semester Celebration 2012 on the 9th of May.

Attendance is in the canteen at 17:30 that day, that is, after the final exams this spring semester. This time the Entertainment and Sports- and Family representatives of FSHA will invite students to a alcohol-free celebration but instead offer grilled hot dogs and entertainment.

The entertainment will be varied to suit all, whether people want to celebrate for example outside by playing badminton or inside playing SingStar.

This is a family friendly event where alcohol is not allowed.

We hope to see you all On behalf of The Entertainment committee, Elín On behalf of The Sport- and Family committee, Arnar

Meira

Opnunartími húsnæðis í prófatíð

FSHA - 24. apríl 2012

 

Nú eru prófin komin á fullt og verður tekið tillit til aukinnar viðveru stúdenta í skólanum. Frá og með laugardegi 21. apríl til og með sunnudegi 7. maí verða hús háskólans opin frá kl. 08:00 til kl. 18:00 um helgar. Á þeim tíma, svo og á venjulegum opnunartíma alla virka daga, hafa stúdentar aðgang að lesrými í kennslustofum K201-K202-K203 og L201-L202-L203. Stúdentar hafa eins og venjulega aðgang allan sólarhringinn að mötuneyti og lesrými á bókasafni. Ef vart verður við plássleysi, munum FSHA endurmeta stöðuna í samstarfi við háskólann.   Vinsamlega gangið vel og snyrtilega um húsnæðið. Gangi ykkur vel í prófunum!

 

 

Meira

Fréttasafn

2  3  4  5  6  7  8  9  10  11  12  13  14  15  16  17  18  19  20  21  22  23  24  25  26  27  28  29  30  Næsta >

Fréttir

Fréttasafn