Fréttir & tilkynningar
Back to School Partý!!!
FSHA - 31. ágúst 2010
Núna á laugardaginn ætlar Sjallinn í samstarfi við N3 samsteypuna að halda svokallað Back to school ball Hægt er að nálgast boðsmiða á skrifstofu FSHA á meðan við erum þar út þessa viku, engir sérstakir opnunartímar eru en ef ykkur gengur illa að hitta á okkur í stjórninni þá getið þið sent póst á fsha@fsha.is og ég mun koma til ykkar miða. FSHA fékk um 400 miða til dreifingar og gengur mjög vel að koma þeim út svo allt stefnir í það að í Sjallanum verði frábær Háskólahittingur. Miðaverð er 1000 krónur fyrir þá sem ekki útvega sér boðsmiða en hafa ber í huga að þeir gilda eingöngu til 02:00 um nóttina. Ballið samanstendur af N3 plötusnúðum sem spila allt og eru meðal annars þekktir fyrir að vera með 30 ára ball um versló og við munum taka sérstakan hálftíma í þá tónlist sem og einnig fá til okkar atriði á svið m.a. atriði úr Rocky Horror og fleira.
Góða skemmtun
Þórólfur Ómar
Upplýsinga og kynningarfulltrúi FSHA

Athugasemdir
Atburðir
-
Stóra vísindaferðin09. febrúar 12:00FSHA
-
Árshátíð03. mars 19:30FSHA
-
Aðalfundur17. mars 14:00FSHA
-
Próflokadjamm09. maí 21:00FSHA
Fréttir
-
Tilboð á Gulleyjuna
07. febrúar 14:44
-
Félagsfundur: Umræður og kynning á nýju skipulag FSHA og deildarfélaga
29. janúar 14:43
-
Stóra vísindaferðin suður
24. janúar 14:57








