Fréttir & tilkynningar
Stutt ávarp
FSHA - 07. september 2010
Heil og sæl
Vonandi hafa allir skemmt sér konunglega þessa daga sem liðnir eru frá upphafi skólaársins án þess að missa sjónar af því mikilvægasta sem er að sjálfsögðu námið, við erum hérna til þess að læra þó svo við viljum einnig hafa gaman af því.
Í sumar var farið í mjög mikilvæga vinnu innan skólans við að taka saman réttindaskrá nemenda og útbúa handbók sem heldur utan um mikilvæg málefni sem snerta nemendur og má þar nefna málskotsrétt og rétt til kvartana. Þessi handbók er nú aðgengileg á vef háskólans og má skoða hana með því að klikka hér. Félag Stúdenta við Háskólann á Akureyri hvetur alla nemendur til þess að gefa sér tíma til þess að kynna sér efni bæklingsins, þar sem þetta er mikill sigur í hagsmunabaráttu nemenda og gerir kvörtunarferlið mun skilvirkara og auðveldara í framkvæmd. Erum við í stjórn FSHA mjög stolt af útkomu þessarar réttindarskrár og óskum nemendum til hamingju með hana.
Heimasíða FSHA er öll að koma til eftir að hafa átt erfiða fæðingu en hún var endurnýjuð á vormánuðum, við ætlum að vera duglega að setja inn tilkynningar og höfum hvatt deildarfélögin til þess að notfæra sér síðuna einnig. Ef þið lumið á myndum frá viðburðum deildarfélagana vil ég endilega hvetja ykkur til að koma þeim til stjórna ykkar félags eða hreinlega beint til okkar á skrifstofu FSHA svo hægt sé að birta þær á heimasíðunni.
Fyrir hönd FSHA
Þórólfur Ómar Óskarsson
Upplýsinga og Kynningarfulltrúi
Athugasemdir
Atburðir
-
Stóra vísindaferðin09. febrúar 12:00FSHA
-
Árshátíð03. mars 19:30FSHA
-
Aðalfundur17. mars 14:00FSHA
-
Próflokadjamm09. maí 21:00FSHA
Fréttir
-
Tilboð á Gulleyjuna
07. febrúar 14:44
-
Félagsfundur: Umræður og kynning á nýju skipulag FSHA og deildarfélaga
29. janúar 14:43
-
Stóra vísindaferðin suður
24. janúar 14:57








