Fréttir & tilkynningar
Stóra vísindaferðin suður
FSHA - 24. janúar 2012
Þann 9. – 12. febrúar ætlum við að fara í hina árlegu STÓRU vísindaferðina, þá fara allir nemendur saman í rútum til Reykjavíkur og gista á Hólet Cabin.
Farið verður suður á hádegi á fimmtudeginum 9. febrúar næstkomandi og verður lagt af stað norður í hádeginu á sunnudaginn (12. febrúar) frá Hótel Cabin. Dagskrá ferðarinnar er að miklu leyti í höndum deildarfélagana en upplýsingar um ferðir þeirra er hægt að finna undir þeirra síðum. Mælum því með að skoða þær vandlega. Farin verður í eina sameiginlega vísindaferð til NOVA en þau hafa verið einn helsti styrktaraðili FSHA undanfarin misseri.
Ásamt öllu þessu er bara hefð fyrir því að hafa gaman og hugsa um allt annað en lærdóm alla helgina! Upplýsingar um verð má finna hjá deildarfélaginu þínu en þau sjá einnig um skráningu í ferðina. Hvetjum sem flesta til að skrá sig og taka þátt í þessari stórskemmtilegri ferð.
Athugasemdir
Atburðir
-
Árshátíð03. mars 19:30FSHA
-
Aðalfundur16. mars 17:00FSHA
-
Próflokadjamm09. maí 21:00FSHA
Fréttir
-
Framboð til stjórnarsetu FSHA og trúnaðastarfa
16. febrúar 20:20
-
Afmælishátíðinni frestað
15. febrúar 14:51
-
Afmælishátíð FSHA 16. feb
13. febrúar 15:40








