Fréttir & tilkynningar
Afmælishátíðinni frestað
FSHA - 15. febrúar 2012
Afmælishátíðin sem til stóð að halda í Miðborg fimmtudaginn 16. febrúar hefur verið frestað af óviðráðanlegum orsökum sem tengjast leikfélaginu sem ætlaði að troða upp. Í staðinn verður blásið til hátíðarhaldanna í næstu viku en endanleg dagsetning er ekki frágengin en verður auglýst vel hér innanhúss um leið og hún liggur fyrir.
Vert er að benda á að nú stendur yfir sala á sérstaka háskólasýningu á Gulleyjunni hjá LA. Nemendur og starfsfólk HA getur nálgast miða á sérkjörum í miðasölu leikfélagsins eða á skrifstofu FSHA.
Fylgist vel með nýjum dagsetningum vegna afmælishátíðarinnar!
Kveðja,
Stjórn FSHA
Athugasemdir
Fréttir
-
Tilboð í líkamsrækt
28. apríl 17:00
-
Próflokagleði FSHA
25. apríl 20:44
-
Opnunartími húsnæðis í prófatíð
24. apríl 19:00








