Fréttir & tilkynningar
Framboð til stjórnarsetu FSHA og trúnaðastarfa
FSHA - 16. febrúar 2012
Kæru samnemendur
Í mars ár hvert heldur FSHA aðalfund sinn þar sem m.a. er kosin ný stjórn félagsins sem og nemendur til að sinna hinum ýmsu trúnaðarstörfum í ráðum og nefndum fyrir hönd samnemenda sinna.
Stefnt er að því að halda aðalfundinn föstudaginn 16. mars klukkan 17:00. Staðfesting á þessum tíma og nánari upplýsingar verða auglýstar þegar nær dregur.
FSHA hefur nú þegar hafið móttöku á framboðum til stjórnarsetu og til trúnaðarstarfa fyrir næsta starfsár FSHA, 2012-2013.
Leifur Guðni Grétarson, núverandi kynningarfulltrúi sækist eftir sæti formanns FSHA og mun af þeim ástæðum ekki sinna störfum formanns kjörnefndar eins og honum ber samkvæmt lögum FSHA. Formennska kjörnefndar verður því í höndum Kristínar og Hafrúnar, fráfarandi formanns og varaformanns FSHA.
Jóhann Gunnar Kristjánsson núverandi fjármálastjóri FSHA hefur sóst eftir endurkjöri í það starf.
Justyna Wróblewska núverandi formaður Kumpána hefur sóst eftir sæti varaformanns FSHA.
Alfa Dröfn Jóhannsdóttir núverandi fulltrúi nýnema í stjórn FSHA hefur sóst eftir sæti varaformanns FSHA.
Ester Ósk G. Waage hefur sóst eftir að sinna störfum alþjóðafulltrúa. Ester var í skiptinámi í Barcelona
Ester býður sig einnig fram sem fulltrúa nemenda í stjórn FÉSTA.
Elín Birna Vigfúsdóttir hefur boðið sig fram í stöðu skemmtanastjóra. Elín hefur átt sæti í skemmtinefnd FSHA undanfarin ár.
Ragnar Heiðar Sigtryggsson, nemandi á fyrsta ári í viðskiptafræði, hefur boðið sig fram í stöðu skemmtanastjóra FSHA.
Kolbrún Eva Ríkharðsdóttir sækist eftir sæti aðalfulltrúa nemenda í Háskólaráði. Kolbrún hefur setið í gæðaráði síðustu tvö ár er núverandi formaður Þemis.
Hafdís Erna Ásbjarnardóttir, núverandi varafulltrúi í Háskólaráði, sækist eftir sæti aðalfulltrúa í Háskólaráði.
Arnar Egilsson, fyrrverandi formaður Kumpána, sækist eftir starfi Íþrótta- og fjölskyldufullrúa FSHA.
Sveinn Þorkelsson, fulltrúi Reka í Íþróttanefnd FSHA, sækist eftir starfi Íþrótta- og fjölskyldufulltrúa FSHA.
Þuríður Pétursdóttir, formaður Málfundafélags Þemis, sækist eftir sæti í jafnréttisráði.
Þau embætti sem kosið verður í á aðalfundi eru eftirfarandi:
- • Formaður FSHA
- • Varaformaður FSHA
- • Fjármálastjóri FSHA
- • Kynningarfulltrúi FSHA
- • Upplýsingafulltrúi FSHA
- • Skemmtanastjóri FSHA
- • Alþjóðafulltrúi FSHA
- • Íþrótta- og fjölskyldufulltrúi FSHA
- • Aðalfulltrúa nemenda í Háskólaráð - kosið til tveggja ára
- • Varafulltrúa nemenda í Háskólaráð - kosið til tveggja ára
- • Tvo aðalfulltrúa nemenda í Gæðaráð
- • Tvo varafulltrúa nemenda í Gæðaráð
- • Fulltrúa í stjórn FÉSTA
- • Varafulltrúa í stjórn FÉSTA
- • Fulltrúa í jafnréttisráð
- • Varafulltrúa í jafnréttisráð
- • 3 fulltrúar í umhverfisráð
- • 2 varafulltrúa í umhverfisráð
- • Fullrúa í vísindaráð
- • Varafulltrúa í vísindaráð
- • Fulltrúa nemenda í siðanefnd
- • Varafulltrúa nemenda í siðanefnd
- • 6 fulltrúa á Háskólafund
- • 6 varafulltrúa á Háskólafund
- • Skoðunarmann reikninga FSHA
Áhugasamir vinsamlegast sendið framboð í töluvpóst á fsha@fsha.is
mbk.
Kristín og Hafrún
Stjórn FSHA
Athugasemdir
Fréttir
-
Tilboð í líkamsrækt
28. apríl 17:00
-
Próflokagleði FSHA
25. apríl 20:44
-
Opnunartími húsnæðis í prófatíð
24. apríl 19:00








