Um FSHA

Um félagið

FSHA er félag stúdenta við Háskólann á Akureyri og eru allir nemendur Háskólans á Akureyri félagar í því. Félagið er fyrst og fremst hagsmunafélag með hag stúdenta að leiðarljósi innan sem utan skóla. Félagið á fulltrúa í mörgum nefndum og ráðum innan skólans sem utan og er einnig í samstarfi við nemendafélög annarra háskóla í landinu.

Stjórn FSHA er skipuð sjö fulltrúum. Sex eru kjörnir á aðalfundi félagsins og einn nýnemi er valinn í upphafi hvers skólaárs að loknum nýnemadögum.

Embættin eru eftirfarandi:
· Formaður
· Varaformaður
· Skemmtanastjóri
· Fjármálastjóri
· Upplýsinga- og kynningarstjóri
· Alþjóðafulltrúi
· Fulltrúi nýnema og meðstjórnandi

Hér má sjá hverjir sitja í stjórn FSHA

Stjórnin sér einnig um að eftirfarandi nefndir séu starfræktar:
· Hagsmunaráð
· Skemmtinefnd