Heilsan og íþróttir

Hreyfisalurinn (J-202)
Hann er opinn nemendum og starfsfólki sem hér segir:

Mánudaga til föstudaga: Kl: 07:35 - 14:00 og Kl: 16:00 - 21:30

Salurinn er lokaður á meðan kennslu stendur. Vinsamlega kynnið ykkur stundaskrá og víkið 1/2 klukkustund áður en kennsla hefst.

Í Hreyfisalnum eru meðal annars hlaupabretti, æfingahjól, þrekvél, dýnur, laus lóð, og fleiri tæki.

Fótboltatímar í Boganum
Ekki verður sama snið á íþróttamálum þetta árið og fyrri ár. Stjórn FSHA ákvað á fundi nú í ágúst 2010 að endurskoða aðkomu félagsins að íþróttamálum og verður komin niðurstaða í það mál fyrir lok september 2010. Verið er að skoða hvort hægt sé að vera með íþróttatíma í Boganum eins og síðastliðin ár án þess að það komi óeðlilega mikið niður á fjármálum FSHA.