Lög FSHA

(Lög þessi tóku gildi 16.03.2012)

I. Heiti og félagar

1. gr. [Heiti félagsins og varnarþing]

a. Félagið heitir Félag stúdenta við Háskólann á Akureyri, skammstafað FSHA, með kennitöluna 420888-2799. Lögheimili þess og varnarþing er á Akureyri.

2. gr. [Meðlimir félagsins]

a. Félagar eru allir nemendur Háskólans á Akureyri sem hafa skráð sig til náms og greitt skrásetningargjöld.

II. Starfsemi félagsins

3. gr. [Tilgangur félagsins]

a. Tilgangur félagsins er að:

i. Gæta hagsmuna stúdenta innan skóla sem utan.

ii. Starfrækja ýmsar nefndir og ráð til að efla starfsemi félagsins.

iii. Starfrækja samstarf milli FSHA og nemendafélaga annarra skóla.

iv. Efla félagslegan þroska og samvinnu stúdenta skólans.

4. gr. [Almenn starfsemi]

a. Starfsemi félagsins skal miðast við að sinna daglegri umsýslu, stuðla að nauðsynlegri þjónustu við stúdenta og vera vettvangur þeirra sem heildar.

b. Málefni sjálfstæðra deildarfélaga skulu vera undir þeirra eigin stjórn en undir verndarvæng FSHA.

c. Framkvæmdaráð FSHA getur veitt nefndum, ráðum, fulltrúum FSHA og deildarfélögum á hennar vegum umboð í einstökum málum.

5. gr. [Nú leysist félagið upp]

a. Nú leysist félagið upp og renna þá öll réttindi og skyldur til Háskólans á Akureyri.

III. Stjórnskipan FSHA

6. gr. [Framkvæmdastjórn FSHA]

a. Framkvæmdastjórn skal skipuð formanni, varaformanni og fjármálastjóra FSHA, sem kosnir eru sérstakri kosningu á aðalfundi.

b. Starfstími framkvæmdastjórnar FSHA er á milli aðalfunda.

c. Framkvæmdastjórn sér um daglegan rekstur félagsins, fjármál þess, umsjón með skrifstofu félagsins og samskipti við utanaðkomandi aðila.

d. Framkvæmdastjórn skal vinna markvisst að hagsmunum meðlima félagsins.

e. Einn meðlimur í framkvæmdastjórn skal sitja í stjórn Góðvina HA.

f. Framkvæmdastjórn skal hafa yfirumsjón með handbók nemenda.

g. Starfstími framkvæmdastjórnar er á milli aðalfunda FSHA.

h. Verksvið framkvæmdastjórnarmeðlima er tilgreint í 9. – 11. gr. þessara laga. Framkvæmdastjórn er jafnframt heimilt að setja sér nánari verklagsreglur.

7. gr. [Framkvæmdaráð FSHA]

a. Framkvæmdaráð skal skipað framkvæmdastjórn FSHA, formönnum allra deildarfélaganna og aðal- og varafulltrúum stúdenta í háskólaráði.

b. Framkvæmdaráð fer með æðsta vald félagsins á milli aðalfunda.

c. Formaður FSHA boðar til funda í framkvæmdaráði. Varaformaður gegnir starfi ritara á framkvæmdaráðsfundum.

d. Framkvæmdaráð skal vinna markvisst að hagsmunum meðlima félagsins.

e. Fulltrúar í framkvæmdaráði FSHA skulu ekki sitja í stjórnum deildarfélaga FSHA að undanskyldum formönnum enda taka þeir sjálfkrafa sæti í ráðinu.

f. Starfstími ráðsins er á milli aðalfunda FSHA. Formenn deildarfélaganna skulu þó sitja í ráðinu milli aðalfunda síns deildarfélags.

g. Framkvæmdaráð skal skipa formann kjörnefndar og einn fulltrúa úr hverju deildarfélagi í kjörnefnd.

 

8. gr. [Fulltrúar FSHA]

a. Fulltrúar FSHA eru eftirfarandi:

i. Skemmtanastjóri

ii. Upplýsingafulltrúi

iii. Kynningarfulltrúi

iv. Alþjóðafulltrúi

v. Íþrótta- og fjölskyldufulltrúi

b. Fulltrúar FSHA heyra undir framkvæmdaráð og skulu starfa náið með framkvæmdastjórn félagsins. Fulltrúar FSHA skulu leita til framkvæmdastjórnar og framkvæmdaráðs með sín málefni. Einnig getur framkvæmdastjórn og framkvæmdaráð óskað eftir því að fulltrúar FSHA komi á þeirra fund.

c. Fulltrúar FSHA eru bundnir af ákvörðunum framkvæmdaráðs og er óheimilt að ganga gegn þeim.

d. Verksvið fulltrúa FSHA er tilgreint í 12 gr. þessara laga. Framkvæmdaráð FSHA er jafnframt heimilt að setja fulltrúunum verklagsreglur.

e. Fulltrúar FSHA skulu ekki sitja í stjórnum deildarfélaga FSHA né sitja sem aðal- eða varafulltrúi í háskólaráði.

f. Starfstími fulltrúa FSHA er á milli aðalfunda FSHA.

9. gr. [Verksvið formanns]

a. Formaður er framkvæmdastjóri og helsti talsmaður félagsins innan skólans sem og utan hans.

b. Formaður er ábyrgðarmaður félagsins.

c. Formaður boðar til funda í framkvæmdastjórn, framkvæmdaráði og hagsmunaráði FSHA. Hann skal senda út fundardagskrá með fundarboði eða eins fljótt og auðið er.

d. Formaður boðar til félagsfunda. Í byrjun funda skipar hann fundarstjóra og fundarritara.

e. Formaður skal hafa samráð við framkvæmdastjórn og framkvæmdaráð, eftir því sem við á, um öll mál sem upp koma.

f. Formaður getur úthlutað verkefnum til framkvæmdastjórnar sem ekki eru sérstaklega skilgreind í lögum eða verklagsreglum félagsins.

g. Formaður situr í stjórn FÉSTA.

h. Formaður er jafnframt formaður framkvæmdaráðs og hagsmunaráðs FSHA.

i. Formaður er helsti tengiliður félagsins við fulltrúa FSHA og fulltrúa nemenda í nefndum, ráðum og deildarfélögum FSHA.

j. Formaður skal starfrækja samstarf milli FSHA og nemendafélaga annarra skóla.

k. Hætti formaður störfum skal varaformaður taka við störfum hans.

10. gr. [Verksvið varaformanns]

a. Varaformaður skal vera formanni innan handar í öllum málum og gegna starfi formanns í forföllum hans.

b. Varaformaður er tengiliður FSHA við fjarnema skólans.

c. Varaformaður hefur yfirumsjón með skrifstofu félagsins.

d. Varaformaður gegnir starfi ritara sem felur í sér að rita fundargerðir í framkvæmdastjórn, framkvæmdaráði og hagsmunaráði FSHA.

e. Varaformaður skal birta fundargerðir á heimasíðu félagsins, innan við viku eftir að þær eru samþykktar.

f. Varaformaður getur úthlutað verkefnum á framkvæmdastjórn er lúta að opnunartíma og þrifum á skrifstofu.

 

11. gr. [Verksvið fjármálastjóra]

a. Fjármálastjóri ber ábyrgð á fjárreiðum félagsins.

b. Fjármálastjóra er einum heimilt að gera fjárhagslegar skuldbindingar í nafni félagsins að fengnu samþykki meirihluta framkvæmdaráðs. Þó getur framkvæmdaráð félagsins veitt formanni það umboð í einstökum málum.

c. Fjármálastjóra er skylt að skila nýrri framkvæmdastjórn löglegu bókhaldi á kynningarfundi með nýjum fjármálastjóra.

d. Fjármálastjóra er heimilt að veita öðrum framkvæmdastjórnarmönnum, framkvæmdaráðsmeðlimum, fulltrúum FSHA og nefndaformönnum takmarkað fjárhagslegt umboð til sérstakra verkefna sem framkvæmdaráð félagsins hefur áður samþykkt.

12. gr. [Verksvið fulltrúa FSHA]

a. Verksvið Skemmtanastjóra FSHA

i. Skemmtanastjóri er formaður skemmtinefndar.

ii. Skemmtanastjóri ber ábyrgð á fjárhagslegri umsýslu vegna skemmtanahalds á vegum skemmtinefndar.

b. Verksvið upplýsingafulltrúa FSHA

i. Upplýsingafulltrúi skal annast miðlun upplýsinga er varða starfsemi félagsins.

ii. Upplýsingafulltrúi skal viðhalda heimasíðu félagsins og annast vefstýringu vefja tengdum ýmsum verkefnum félagsins.

iii. Upplýsingafulltrúi skal sjá til þess að laga- og verklagsbreytingar verði uppfærðar og birtar á heimasíðu í samræmi við þær breytingar sem gerðar hafi verið.

iv. Upplýsingafulltrúi skal vera ritstjóri Ruslpóstsins sem skal gefa út að minnsta kosti einu sinni í mánuði á skólaárinu.

c. Verksvið kynningarfulltrúa FSHA

i. Kynningarfulltrúi skal sjá um að kynna HA út á við og manna kynningarferðir.

ii. Kynningarfulltrúi skal hafa umsjón með kynningarefni sem FSHA sér um.

iii. Kynningarfulltrúi skal hafa umsjón með fyrirtækjakynningum innan skólans sem haldnar eru á vegum félagsins.

iv. Kynningarfulltrúi hefur umsjón með námskeiðishaldi á vegum félagsins.

v. Kynningarfulltrúi skal vera helsti tengiliður FSHA við forstöðumann markaðs- og kynningarsviðs HA.

d. Verksvið alþjóðafulltrúa FSHA

i. Alþjóðafulltrúi er tengiliður við erlenda nemendur skólans og skal vera þeim innan handar.

ii. Alþjóðafulltrúi skal vera helsti tengiliður FSHA við verkefnastjóra alþjóðamála HA.

iii. Alþjóðafulltrúi FSHA skal vera alþjóðafulltrúa HA innan handar í að kynna skiptinám erlendis.

e. Verksvið íþrótta- og fjölskyldufulltrúa FSHA

i. Íþrótta- og fjölskyldufulltrúi er formaður íþrótta- fjölskyldunefndar.

ii. Íþrótta- og fjölskyldufulltrúi skal vinna að málefnum fjölskyldufólks við skólann.

iii. Íþrótta- og fjölskyldufulltrúi skal bera ábyrgð á íþróttastarfsemi FSHA.

iv. Íþrótta- og fjölskyldufulltrúi skal sjá til þess að útvega húsnæði til íþróttaiðkunar í samvinnu við nemendur HA.

13. gr. [Nefndir á vegum félagsins]

a. Framkvæmdastjórn félagsins skal sjá til þess að eftirfarandi ráð og nefndir séu starfræktar:

i. Hagsmunaráð

ii. Skemmtinefnd

iii. Íþrótta- og fjölskyldunefnd

b. Verklagsreglur skulu fylgja þessum nefndum og ráðum og skulu þær yfirfarnar á aðalfundi ár hvert. Verklagsreglur skal birta samhliða lögum þessum.

IV. Stjórnarhættir

14. gr. [Þagnarskylda]

a. Allir þeir sem sinna trúnaðarstörfum fyrir FSHA eða deildarfélögin eru bundnir trúnaði um þau mál sem þeir kunna að heyra störfum sínum um persónuleg mál einstakra nemenda.

15. gr. [Skilyrði til trúnaðarstarfa]

a. Nemendur sem sinna trúnaðarstörfum í þágu félagsins skulu vera meðlimir í FSHA og stunda að minnsta kosti 50% nám við Háskólann á Akureyri.

16. gr. [Meginreglur stjórnarhátta]

a. Hefja skal hvern fund á samþykkt fundargerðar síðasta fundar.

b. Á framkvæmdaráðsfundum ræður meirihluti atkvæða úrslitum mála. Ef atkvæði falla jafnt ræður atkvæði formanns.

c. Til að framkvæmdaráðsfundur teljist ályktunarbær þarf meirihluti ráðsins að vera viðstaddur fund.

d. Fari þrír framkvæmdaráðsmenn fram á framkvæmdaráðsfund skal hann haldinn innan tveggja sólarhringa eða svo fljótt sem auðið er.

e. Framkvæmdastjórn og framkvæmdaráð félagsins skal vanda til allra starfa og hafa almennar samskiptavenjur að leiðarljósi.

f. Fjárhagsáætlun fyrir starfsár FSHA skal samþykkt á fundi framkvæmdaráðs fyrir páska og birt á heimasíðu FSHA.

17. gr. [Upplýsingaskylda stjórnar]

a. Framkvæmdastjórn félagsins skal með reglulegum hætti gera nemendum grein fyrir þeim málum sem rædd eru í framkvæmdaráði, að svo miklu leyti sem hún telur það ekki skaða framgang viðkomandi mála.

b. Framkvæmdastjórn félagsins skal sjá til þess að kynning fari fram á starfsemi félagsins og á einstökum embættum fyrir aðalfund og fyrir nýnema í byrjun haustmisseris.

c. Eldri framkvæmdastjórn er skylt að halda kynningarfund um starfsemi félagsins með nýrri framkvæmdastjórn innan viku frá aðalfundi og skulu stjórnarskipti þá fara fram.

d. Fráfarandi framkvæmdastjórn skal vera nýrri stjórn innan handar varðandi störf félagsins að lágmarki út skólaárið. Einnig skulu fulltrúar FSHA vera nýjum fulltrúum innan handar varðandi sín störf að lágmarki út skólaárið.

18. gr. [Krafa um félagsfund]

a. Óski 1/10 félagsmanna FSHA skriflega eftir félagsfundi skal formaður FSHA boða til fundarins.

19. gr. [Félagsfundir]

a. Framkvæmdaráð félagsins hefur heimild til að boða til félagsfundar og skal það gert með minnst tveggja sólarhringa fyrirvara.

b. Framkvæmdaráð félagsins hefur heimild til að bera upp einstök mál til samþykktar eða synjunar á félagsfundi.

c. Á félagsfundi getur félagsmaður borið upp vantraust á formann sem og aðra framkvæmdastjórnarmeðlimi og fulltrúa FSHA. Tillaga hans þarf að hljóta samþykki 2/3 fundarmanna til að hún nái fram að ganga enda sé a.m.k. 1/10 félagsmanna á félagsfundinum.

20. gr. [Þóknun fyrir störf í þágu félagsins]

a. Þeir nemendur sem starfa fyrir félagið skulu fá greitt fyrir störf sín.

b. Greiða skal framkvæmdastjórn félagsins og fulltrúum FSHA samkvæmt Viðauka 1, sem fylgja skal lögum þessum og samþykkja þarf á aðalfundi ár hvert.

c. Greiða skal fyrir fundarsetu í nefndum og ráðum. Greiðslur skulu ákveðnar af framkvæmdaráði og skulu endurskoðaðar á þriggja mánaða fresti.

d. Heimilt er að greiða fyrir önnur tilfallandi störf með samþykki meirihluta framkvæmdaráðs.

V. Aðalfundur

21. gr. [Boðun aðalfundar]

a. Aðalfund skal halda í febrúar ár hvert.

b. Til aðalfundar skal boða með auglýsingum á vef félagsins og á tilkynningatöflum í húsnæði Háskólans með minnst 10 daga fyrirvara. Einnig skal aðalfundur auglýstur á þeim samskiptavefum sem FSHA heldur úti og tilkynning send á netfang allra nemenda.

c. Í aðalfundarboði skal koma fram hvar og hvenær fundurinn er haldinn.

d. Aðalfundur telst löglegur ef til hans er boðað skv. lögum félagsins.

22. gr. [Tilgangur aðalfundar]

a. Aðalfundur er helsti vettvangur lagabreytinga, starfsskila framkvæmdastjórnar og fulltrúa FSHA og reikningsskila og fer að öðru leyti með æðsta vald í málefnum félagsins.

23. gr. [Dagskrá aðalfundar]

a. Dagskrá aðalfundar:

i. Fundur settur.

ii. Kosning fundarstjóra.

iii. Kosning fundarritara.

iv. Skýrsla framkvæmdastjórnar og fulltrúa FSHA.

v. Skýrsla fjármálastjóra.

vi. Lagabreytingar.

vii. Kynning á framboðum til embætta formanns, varaformanns og fjármálastjóra.

viii. Kosning formanns, varaformanns og fjármálastjóra.

ix. Kynning á nýrri framkvæmdastjórn FSHA

x. Kynning á framboðum til embætta fulltrúa FSHA

xi. Kosning á fimm fulltrúum FSHA

xii. Kynning á fulltrúum FSHA

xiii. Aðrar kosningar.

xiv. Kynning á nemendum í trúnaðarstörfum.

xv. Önnur mál.

xvi. Fundi slitið.

24. gr. [Mál borin upp á aðalfundi]

a. Framkvæmdaráð félagsins hefur heimild til að bera upp mál til samþykktar eða synjunar á aðalfundi.

b. Meirihluti atkvæða ræður úrslitum mála á aðalfundi að undanskildum lagabreytingum skv. VII. kafla.

c. Breytingatillögur skulu kynntar á sama vettvangi og aðalfundarboð.

d. Til að breyta nafni félagsins þurfa a.m.k. 4/5 félagsmanna sem mættir eru á aðalfund að samþykkja breytinguna.

25. gr. [Kosningar á aðalfundi]

a. Framkvæmdastjórnarkosningar

b. Kosning á fulltrúum FSHA

c. Á aðalfundi eru að auki kosnir fulltrúar í eftirfarandi embætti:

i. Einn skoðunarmann reikninga FSHA til eins árs.

ii. Einn fulltrúa nemenda í stjórn FÉSTA til eins árs og einn til vara.

iii. Einn fulltrúa nemenda í Háskólaráð HA til tveggja ára og einn til vara.

iv. Einn fulltrúa nemenda í jafnréttisráð HA til eins árs og einn til vara.

v. Einn fulltrúa í Siðanefnd HA til eins ár og einn til vara.

vi. Tvo fulltrúa í Gæðaráð HA til eins árs og tvo til vara.

vii. Einn fulltrúa í Vísindaráð HA til eins árs og einn til vara.

viii. Þrír fulltrúar í Umhverfisráð HA til eins árs og tveir til vara.

d. Nú hafa ekki nægilega margir fulltrúar gefið kost á sér í embætti þau er lögbundið er að skulu vera skipuð skv. lögum þessum og getur stjórn félagsins þá valið aðila til setu í viðkomandi embættum.

e. Annars fer um kosningar á aðalfundi skv. VI. kafla.

26. gr. [Almennar venjur um fundarstörf]

a. Almennar venjur um fundarstjórn og fundarsköp skulu gilda þar sem á vantar í lögum þessum.

VI. Kosningar

27. gr. [Kjörgengi og kosningaréttur]

a. Kjörgengi og kosningarétt hafa allir meðlimir félagsins.

28. gr. [Skilyrði framboða til framkvæmdastjórnar félagsins]

a. Framboðsyfirlýsingar frambjóðenda skulu berast formanni kjörnefndar eigi síðar en fimm sólarhringum fyrir upphaf aðalfundar.

29. gr. [Skilyrði framboða til fulltrúa FSHA]

a. Framboðsyfirlýsingar frambjóðenda til fulltrúa FSHA skulu berast formanni kjörnefndar eigi síðar en fimm sólarhringum fyrir upphaf aðalfundar.

30. gr. [Kjörnefnd]

a. Framkvæmdaráð skal skipa einn fulltrúa úr hverju deildarfélagi FSHA í kjörnefnd.

b. Kjörnefnd skal jafnóðum og framboðsyfirlýsingar berast birta þær á vef félagsins.

31. gr. [Framkvæmd kosninga]

a. Kosning til framkvæmdastjórnar, fulltrúa FSHA og annarra embætta skal fara fram með leynilegum atkvæðagreiðslum á aðalfundi félagsins.

b. Í kosningum til formanns, varaformanns og fjármálastjóra hljóta þeir aðilar embættin sem fá flest atkvæði til viðkomandi embætta.

c. Nú hefur verið kosið til formanns, varaformanns og fjármálastjóra. Þá skulu kosnir fimm fulltrúar FSHA til embætta þeirra er nefnd eru í, a. lið, 8. gr. þessara laga.

d. Í kosningum til fulltrúa FSHA hljóta þeir aðilar embættin sem fá flest atkvæði til viðkomandi embætta.

e. Í kosningu í embætti sem nefnd eru í c. lið 25. gr. þessara laga hljóta þeir aðilar embættin sem fá flest at kvæði til viðkomandi embætta.

f. Falli atkvæði jafnt við kjör skal endurtaka kosningu milli viðkomandi frambjóðenda og falli atkvæði enn jafnt ræður hlutkesti.

g. Nú hafa ekki nægilega margar framboðsyfirlýsingar borist til að fullmanna megi embætti innan félagsins sem tilgreind eru í lögum þessum og er þá heimilt að opna fyrir framboð á aðalfundi.

h. Aðrar kosningar skulu fara fram með handauppréttingum.

VII. Lagabreytingar

32. gr. [Tillögur til lagabreytinga]

a. Tillögur að lagabreytingum skal skilað skriflega til framkvæmdastjórnar minnst tveimur sólarhringum fyrir upphaf aðalfundar.

b. Lagabreytingar þurfa samþykki minnst 2/3 fundarmanna til að öðlast gildi.

c. Samþykkja þarf hvern lið hverrar greinar fyrir sig, sem breytingatillaga hefur borist á.

d. Liggi fyrir breytingartillaga á ákveðnum lið, ákveðinnar greinar laga FSHA á aðalfundi skal opna fyrir umræðu á viðkomandi lið þeirrar greinar. Fundarmönnum skal gefinn kostur á að koma með athugasemdir og tillögur að breytingu á viðkomandi lið.

33. gr. [Auka lagabreytingafundir]

a. Boða má til sérstaks lagabreytingafundar ef brýna nauðsyn ber til.

b. Fundarboð skal fara fram á sama hátt og fundarboð aðalfundar.

c. Tillögum til lagabreytinga skal skilað til stjórnar minnst tveimur sólarhringum fyrir upphaf lagabreytingafundar.

d. Ekki er leyfilegt að bera upp önnur mál en lagabreytingar á sérstökum lagabreytingafundum.

e. Lagabreytingar á sérstökum lagabreytingafundum þurfa samþykki minnst 2/3 fundarmanna til að öðlast gildi.

VIII. Reikningar og endurskoðun

34. gr. [Reikningsár félagsins]

a. Reikningsár félagsins skal miðast við aðalfund ár hvert.

35. gr. [Skoðunarmenn og endurskoðendur]

a. Reikningar skulu yfirfarnir af kjörnum skoðunarmanni reikninga.

b. Bókhald félagsins skal yfirfarið af hæfum einstaklingi utan félagsins.

c. Reikningar skulu ávallt liggja frammi á skrifstofu félagsins til skoðunnar fyrir alla félagsmenn.

36. gr. [Fjárhagur]

a. Ef um afgang af rekstri er að ræða skal hann renna beint til næsta starfsárs.

IX. Undirfélög FSHA

37. gr. [Deildarfélög]

a. Deildarfélag er sjálfstætt starfandi félag innan FSHA, með eigin lög þar sem almenn lög um deildarfélög liggja til grundvallar, sem starfar innan hverrar deildar/sviðs Háskólans.

b. Nú kemur upp deila innan deildarfélags sem stjórn þess getur ekki leyst og er þá framkvæmdaráð FSHA æðsta úrskurðarvald.

c. Einn fulltrúi frá hverju deildarfélagi er jafnframt í skemmtinefnd, hagsmunaráði og íþrótta- og fjölskyldanefnd þeirri sem FSHA starfrækir. Fulltrúa í skemmtinefnd og íþrótta- og fjölskyldunefnd skal kjósa á aðalfundi deildarfélags.

d. Framkvæmdaráð FSHA skal leitast við að samræma starfsemi deildarfélaga svo ekki verði hagsmunaárekstrar.

e. Aðalfundir deildarfélaga skulu haldnir eigi síður en tveimur vikum eftir aðalfund FSHA

38. gr. [Framlag FSHA til deildarfélaga]

a. FSHA er skylt að veita framlag til deildarfélaga í byrjun haustmisseris í samræmi við fjölda skráðra félagsmanna. Skilyrði fyrir framlagsveitingu er að viðkomandi félag hafi virka stjórn.

b. Bókhald deildarfélaganna skal vera opið framkvæmdastjórn FSHA til skoðunar, ef hún fer fram á það. Framkvæmdastjórn FSHA getur sett það sem skilyrði fyrir styrkveitingum til deildarfélags.

c. Deildarfélög skulu skila eintaki af lögum, ársreikningi og skýrslu um starfsemi sína, í rafrænu formi, til framkvæmdastjórnar FSHA strax að loknum aðalfundi deildarfélags. Einnig skulu deildarfélög skila starfsskýrslum fyrir aðalfund FSHA.

39. gr. [Lausafjárstaða deildarfélaga]

a. Lausafjárstaða deildarfélaga skal ekki vera lægri en sem nemur 150.000 kr við stjórnarskipti.

b. Ef lausafjárstaða deildarfélags er hærri en 600.000 kr við stjórnarskipti mun það félag ekki hljóta fjárframlag frá FSHA næsta skólaár. Mun sá peningur renna í sjóð í þágu nemenda.

c. Nú er lausafjárstaða deildarfélags hærri en 600.000 kr við stjórnarskipti og getur stjórn viðkomandi félags sent skriflega beiðni um undanþágu á ákvæði b.liðar liggi sérstakar ástæður þar að baki.

X. Gildistaka

40. gr. [Gildistaka laganna]

a. Lög þessi öðlast þegar gildi.

 

 

Viðauki 1 – Þóknun fyrir störf í þágu félagsins

a. Greiðslur til framkvæmdastjórnar skulu vera 45.000 krónur á mánuði, á hvern stjórnarmeðlim, á tímabilinu milli aðalfunda að frádregnum, júní, júli og ágúst. Þetta er hámarksgreiðsla til þessara meðlima og fá þeir ekki greitt aukalega fyrir aðra fundarsetu.

b. Fulltrúar FSHA skulu fá greitt fyrir störf sín 60.000 krónur á tímabilinu milli aðalfunda.

c. Fulltrúar í framkvæmdaráði, þó ekki framkvæmdastjórn, skulu fá greitt fyrir fundarsetu, 1.000 krónur á fulltrúa fyrir hvern framkvæmdaráðsfund.

d. Fulltrúar nemenda í nefndum og ráðum fá greitt fyrir störf sín sem hér segir:

i. Fulltrúar í gæðaráði fá 5.000 krónur á fund.

ii. Fulltrúi í siðanefnd fær 5.000 krónur á fund.

iii. Fulltrúar í umhverfisráði fá 1.000 krónur á fund.

iv. Fulltrúi í jafnréttisráði fær 1.000 krónur á fund.

v. Fulltrúi í vísindaráði fær 1.000 krónur á fund.

vi. Fulltrúi í stjórn FÉSTA fær 1.000 krónur á fund.

e. Þóknun fyrir störf í þágu félagsins skal endurskoða í framkvæmdaráði á þriggja mánaða fresti, sbr. 20. gr laga FSHA um þóknun fyrir störf í þágu félagsins.

 

 

Viðauki 2 – Verklagsreglur

Verklagsreglur Hagsmunaráðs

a. Tilgangur Hagsmunaráðs er að virkja hagsmunagæslu nemenda innan deilda/sviða og gæta jafnræðis í hagsmunagæslu nemenda óháð deildum/sviðum.

b. Hagsmunaráð FSHA er samráðsvettvangur aðildarfélaga FSHA um hagsmunamál nemenda.

c. Í hagsmunaráði situr framkvæmdaráð FSHA auk fulltrúa nemenda í siðanefnd og gæðaráði.

d. Fráfarandi formaður FSHA skal vera nýskipuðu Hagsmunaráði innan handar út skólaárið.

e. Málefni háskóla- og gæðaráðs skulu borin upp á fundum hagsmunaráðs.

f. Málefni sviðsfunda deildarráðsfunda og deildarfunda er varða hagsmuni nemenda skulu borin upp á fundum hagsmunaráðs.

g. Hagsmunaráð skal taka fyrir málefni er varða nemendur sem upp koma í háskólaráði, siðanefnd og gæðaráði. Ásamt því að vinna í málum einstakra nemenda sem upp kunna að koma.

h. Hagsmunaráð tekur fyrir þau málefni einstakra nemenda er varða ágreining nemanda og kennara og fleira sem getur fallið undir þann málaflokk.

i. Hagsmunaráð skal ávallt koma saman vikuna fyrir fundi í háskólaráði/gæðaráði og þess utan ef þörf er á. Funda skal að lágmarki einu sinni í mánuði.

j. Varaformaður FSHA skal vera ritari í Hagsmunaráði og sjá til þess að upplýsingafulltrúa FSHA berist fundargerðir til birtingar.

k. Fundarboð Hagsmunaráðs skal berast til meðlima Hagsmunaráðs og stjórnar FSHA eigi síðar en tveimur sólarhringum fyrir fund.

l. Fundargerðir Hagsmunaráðs skulu almennt vera opnar og birtar nemendum, þó með þeirri undantekningu að persónuleg mál eru ekki gerð opinber.

m. Komi til ágreinings innan Hagsmunaráðs ber framkvæmdastjórn FSHA úrskurðarvald í slíkum málum.

Verklagsreglur þessar voru samþykktar á lagabreytingaraðalfundi FSHA 30.09.11

 

Verklagsreglur Skemmtinefndar

a. Tilgangur skemmtinefndar er að vera skemmtanastjóra FSHA innan handar í þeim verkefnum sem honum ber að sinna.

b. Skemmtanastjóri er formaður skemmtinefndar.

c. Þeir viðburðir sem skemmtinefnd þarf að koma að eru eftirtaldir

i. Nýnemadagar sem skulu haldnir fyrstu viku skólans (í velgengnisviku)

ii. Sprellmót sem skal haldið fyrsta eða annan föstudag í október.

iii. Konukvöld sem skal haldið fyrsta laugardag í nóvember.

iv. Próflokadjamm sem skal haldið síðasta prófadag haustmisseris

v. Stóra vísindaferðin suður sem skal haldin fyrstu helgina í febrúar, ef ekki stangast á við verklegar vikur.

vi. Árshátíð sem skal haldin fyrsta laugardag í mars.

vii. Próflokadjamm sem skal haldið síðasta prófadag vormisseris

d. Hvert deildarfélag skal skipa einn fulltrúa í skemmtinefnd og skal hann kosinn á aðalfundi félags ár hvert.

e. Ný skemmtinefnd skal eiga fund með fráfarandi skemmtinefnd eigi síðar en þremur vikum eftir aðalfund FSHA og þá skal vera búið að skipa alla fulltrúa.

f. Á fyrsta fundi nýskipaðrar skemmtinefndar skal skipa ritara sem skal rita fundargerðir nefndarinnar og skila til upplýsingafulltrúa FSHA til birtingar eigi síðar en viku eftir fund.

g. Fundargerðir skemmtinefndar skulu vera opnar nemendum.

h. Ef upp kemur ágreiningur innan skemmtinefndar ber framkvæmdaráð FSHA úrskurðarvald í þeim efnum.

 

Verklagsreglur þessar voru samþykktar á lagabreytingaraðalfundi FSHA 30.09.11

 

 

Verklagsreglur íþrótta- og fjölskyldunefndar

a. Tilgangur íþrótta- og fjölskyldunefndar er að standa að og skipuleggja íþrótta- og fjölskylduviðburði fyrir nemendur Háskólans á Akureyri.

b. Íþrótta- og fjölskyldufulltrúi FSHA er formaður íþrótta- og fjölskyldunefndar.

c. Hvert deildarfélag skal skipa einn fulltrúa í íþrótta- og fjölskyldunefnd og skal hann kosinn á aðalfundi félags.

d. Ný íþrótta- og fjölskyldunefnd skal eiga fund með fráfarandi nefnd eigi síðar en þremur vikum eftir aðalfund FSHA og skal þá búið að skipa alla fulltrúa

e. Á fyrsta fundi nýskipaðrar íþrótta- og fjölskyldunefndar skal skipa ritara sem skal rita fundargerðir nefndarinnar og skila til upplýsingafulltrúa FSHA eigi síður en viku eftir fund.

f. Ef upp kemur ágreiningur innan íþrótta- og fjölskyldunefndar ber framkvæmdaráð FSHA úrskurðarvald í þeim efnum.

g. Innan tveggja ára frá samþykkt þessara verklagsreglna skal vera búið að setja inn fasta viðburði í þessar verklagsreglur.

 

Verklagsreglur þessar voru samþykktar á lagabreytingaraðalfundi FSHA 30.09.11