Fréttir & tilkynningar

Stóra vísindaferðin suður

Kumpáni - 09. febrúar 2012 12:00

Kæru Kumpánar!
Þá er það komið að því!
Stóra vísindaferðin til höfuðborgarinnar okkar verður helgina 9.-12. febrúar næstkomandi.

Lagt verður af stað frá HA kl. 12:00  fimmtudaginn 9. febrúar og áætluð koma í höfuðborgina einhverjum stundum síðar sama dag.
Gist verður á Hótel Cabin eins og undanfarin ár.

Farið verður í vísindaferðir á föstudeginum og laugardeginum.
Hér kemur drög að dagskrá fyrir þessa daga :


Föstudagur 9. Febrúar :

·         Kl. 11:00 Vísindaferð í Alþingi

·         Kl. 14:00 Vísindaferð í Actavis

·         Kl. 18:00 Vísindaferð óstaðfest

Laugardagur 10. Febrúar:

·         Kl.13:00 „Íslandsmót í félagsvísindum“ móti  HR og HÍ. Keppt verður í brennó, kappáti og reipitogi. Við óskum eftir sjálfboðaliðum í þessar keppnir.

·         Kl. 18:00 Sameiginleg vísindaferð í Nova.

·         Kl. 20:00 Hittum HÍ og HR á Glaumbar þar sem drukkið verður fram  á rauða nótt. Glæsileg  tilboð verða á bjór og skotum.  Þambkeppni, þrautaleikur og pub quiz.

 

Á sunnudeginum þarf að skila af sér hótelherbergjum kl. 12:00 og þá verður lagt af stað heim.

Skráning skal berast í tölvupósti á kumpani@fsha.is  Í tölvupóstinum þarf að koma fram:

1.       1.Fullt nafn

2.       2.Kennitala

3.       3.Símanúmer

4.       4. Hvort viðkomandi ætlar að nýta sér rútuferðir fram og til baka.

5.   Hvort viðkomandi ætlar að vera á hótelinu og hvort viðkomandi vill vera í eins eða tveggja manna herbergi. Sé tveggja manna herbergi valið þarf að taka fram herbergisfélaga. Athugið að eins manns herbergi er að sjálfsögðu dýrara.

Skráning þarf að berast fyrir miðnætti mánudaginn 30. janúar og greiðsla lögð inn á reikning Kumpána  fyrir hádegi þriðjudaginn 31. janúar. Greiðslukvittun skal senda í tölvupósti á kumpani@fsha.is.

Reikningsupplýsingar:

Reikningsnúmer: 1145-26-003790

Kennitala: 421104-3790

Verðskrá:

Kr. 10.925 fyrir 1 manns standard herbergi í 3 nætur

Kr. 8.000 fyrir 2 manna herbergi  á mann

Kr. 5.300 fyrir rútu til Reykjavíkur og til baka og í allar vísindaferður

Morgunverðarhlaðborð innifalið

Til baka

Athugasemdir