Kumpáni - 26. ágúst 2010
Nú rennur nýtt skólaár í garð og ný og fersk andlit eru þessa dagana að bætast í þann fríða hóp sem fyrir er. Til að bjóða nýnema félagsvísindadeildar velkomna í hópinn mun Kumpáni standa fyrir nýnemakvöldi í kvöld. Gleðin mun eiga sér stað á efri hæð Café Amour, hefjast kl. 21:00 og mun bjór flæða eitthvað fram eftir kvöldi. Til að tryggja sér aðgang að slíkum veigum án endurgjalds er ekki vitlaust að mæta snemma. Þó áherslan sé á nýnema viljum við í stjórninni að sjálfsögðu ekki einoka nýja fólkið og eru „eldri“ Kumpánar því að sjálfsögðu einnig hvattir til að mæta og blanda geði við þá nýju.
Til baka