Lög félagsins
Lög Kumpána
félag félagsvísindanema við Háskólann á Akureyri
I. kafli
Heiti félags, aðsetur og tilgangur
1. gr. Félagið heitir Kumpáni, félag félagsvísindanema við Háskólann á Akureyri. Aðsetur þess eru í húsakynnum Háskólans á Akureyri.
2. gr. Félagar eru allir innritaðir nemendur félagsvísindadeildar Háskólans á Akureyri, sem greitt hafa innritunargjald til skólans.
3. gr. Markmið félagsins eru:
a. að gæta sameiginlegra hagsmuna félagsvísindanema og vera málsvari þeirra innan skóla sem utan.
b. að vinna að aukinni samheldni meðal nemenda.
c. að stofna til samstarfs við félög félagsvísindanema annarra skóla heima og erlendis.
II. kafli
Aðalfundur og Kosningar
4. gr. Aðalfundur hefur æðsta vald í málefnum félagsins. Aðalfund skal halda eigi síðar en tveimur vikum eftir aðalfund FSHA. Til fundarins skal boða með auglýsingu á tryggilegan hátt, með sjö daga fyrirvara hið minnsta, og er hann þá lögmætur.
5. gr. Ef aðalfundur telst ekki löglegur skal boða til nýs aðalfundar að viku liðinni og telst sá fundur löglegur.
6. gr. Dagskrá aðalfundar skal vera sem hér segir:
1.Fundur settur.
2.Kosning fundarstjóra.
3.Kosning fundarritara.
4.Skipun kjörnefndar.
5.Skýrsla formanns.
6.Skýrsla gjaldkera og afgreiðsla reikninga.
7.Lagabreytingar.
8.Kosning formanns.
9.Kosning þriggja stjórnarmeðlima.
10.Kosning á fulltrúa nemenda í náms- og matsnefnd félagsvísindaskors. 11.Kosning á fulltrúa nemanda í náms og matsnefnd hugvísindadeildar (nútímafræðinemi).
12.Kosning skoðunarmanns reikninga.
13.Önnur mál.
14.Stjórnarskipti.
15.Fundi slitið.
7. gr. Kosningarétt hafa allir þeir sem teljast aðilar að félagin skv. 2. gr. Það sama skal gilda um kjörgengi.
8. gr. Formaður skal vera kosinn í sérstakri kosningu.
9. gr. Kosning til stjórnar skal fara fram með leynilegum atkvæðagreiðslum á aðalfundi félagsins.
10. gr. Fundarstjóri og fundarritari skulu annast skipulag og framkvæmd kosninga á aðalfundi.
11. gr. Kjósa skal einn fulltrúa nemenda og varamann hans í náms- og matsnefnd hugvísinda annars vegar og félagsvísinda hins vegar. Skulu þeir koma úr viðeigandi skori. Bjóði sig enginn fram skal skipun í þau vera í höndum stjórnar Kumpána.
III. Kafli
Stjórn
12. gr. Í stjórn skulu sitja 5 aðilar sem gegna eftirfarandi embættum; formaður, varaformaður, ritari, gjaldkeri og fulltrúi fyrsta árs nema.
13. gr. Hlutverk formanns skulu vera þau sem hér á eftir segir:
a. Formaður kemur fram fyrir hönd nemenda út á við. Hann skal boða til félags- og stjórnarfunda svo oft sem þess gerist þörf og verður þá eða skipar fundarstjóra. Formaður skal einnig sjá til þess að lög félagsins séu uppfærð í samræmi við lagabreytingar sem samþykktar eru á aðalfundi.
b. Formaður hefur yfirumsjón með framkvæmdum á vegum félagsins og ber hann endanlega ábyrgð á málefnum þess.
c. Formaður situr deildafundi félagsvísindadeildar fyrir hönd nemenda og er fulltrúi Kumpána í hagsmunaráði FSHA.
14. gr. Hlutverk varaformanns skulu vera þau sem hér á eftir segir:
a. Varaformaður skal vera formanni innan handar í öllum málum og gegna starfi formanns í forföllum hans.
b. Ef varaformaður getur ekki gegnt því hlutverki af einhverjum ástæðum skal annar stjórnarmeðlimur taka hans stað.
15. gr. Hlutverk ritara skulu vera þau sem hér á eftir segir:
a. Ritara ritar niður fundargerðir félagsins og færir þær inn á heimasíðu félagsins svo nemendur hafi greiðan aðgang að þeim.
b. Ritari er jafnframt umsjónarmaður heimasíðu félagsins.
16. gr. Hlutverk gjaldkera skulu vera þau sem hér á eftir segir:
a. Gjaldkeri hefur yfirumsjón með fjárreiðum á vegum félagsins, í samráði við stjórn.
b. Gjaldkeri hefur prókúru félagins og ritar firma þess.
c. Hann þarf að standa skil á fjárreiðum félagsins á aðalfundi þess.
17. gr. Hlutverk fulltrúa fyrsta árs nema skulu vera þau sem hér á eftir segir:
a. Fulltrúi fyrsta árs nema skal vera tengiliður stjórnar Kumpána við nemendur á sínu fyrsta ári í Félagsvísindanámi við HA.
b. Fulltrúi fyrsta árs nema skal kjósa í byrjun haustannar ár hvert
18. gr. Á félagsfundi getur félagsmaður borið upp vantraust á meðlim eða meðlimi stjórnar. Tillaga hans þarf að hljóta samþykki 2/3 fundarmanna til að hún nái fram að ganga enda sé a.m.k. 1/10 félagsmanna á félagsfundinum.
IV. Kafli
Félagsfundur
19. gr. Félagsfundur skal haldinn ef 1/5 félagsmanna fer skriflega fram á félagsfund eða meirihluti stjórnar. Fundurinn skal haldinn innan viku og ber stjórninni að boða til fundarins með tryggilegum hætti með minnst tveggja daga fyrirvara.
V. Kafli
Lagabreytingar
20. gr. Lagabreytingar skulu eingöngu eiga sér stað á aðalfundi. Til að lagabreyting öðlist gildi þarf hún að vera samþykkt af a.m.k. meirihluta fundarmanna sem mættir eru á löglegan aðalfund.
21. gr. Lagabreytingatillögur
a. Lagabreytingatillögur stjórnar skulu kynntar á sama vettvangi og aðalfundarboð sem og kynntar sérstaklega á fundinum sjálfum.
b. Lagabreytingatillögur fundarmanna þurfa að berast fundarstjóra fyrir 5. lið dagskráar Aðalfundar eins og segir í 6. grein.
VI. Kafli
Fjármál
22. gr. Stjórn félagsins hefur heimild til þess að leita fjármagns utan veggja háskólans, bæði í formi styrkja sem og samninga.
23. gr. Skoðunarmaður reikninga skal fara yfir reikninga fyrir aðalfund félagsins.
VII. Kafli
Slit á félaginu
24. gr. Nú leysist félagið upp og renna þá öll réttindi og skyldur til FSHA.
VIII. Kafli
Önnur ákvæði
25. gr. Lög félagsins skulu ávallt vera aðgengileg í nýjustu útgáfu á vef félagsins http://kumpani.fsha.is og vera öllum félagsmönnum aðgengileg með þeim hætti.
26. gr. Fundargerðir stjórnar- og aðalfunda félagsins skulu vera, með sama hætti og segir í 25.gr. aðgengilegar öllum félagsmönnum.
Lög þessi taka gildi frá samþykkt þeirra, þann 17. apríl 2009.
Fréttir
-
Stjórn Kumpána 2012-2013
22. mars 22:03
-
Frambjóðendur til stjórnar Kumpána 2012-2013
22. mars 10:48
-
Aðalfundur og kosningakvöld Kumpána
12. mars 22:16








