Fréttir & tilkynningar
1. tbl. 5. árg. Lögfræðings er komið út
Lögfræðingur - 03. maí 2011

Út er komið tímaritið Lögfræðingur sem gefið er út á vegum Þemis, félags laganema við Háskólann á Akureyri. Þetta er í fimmta skiptið sem tímaritið er gefið út.
Í 1. tbl. 5. árg. tímaritsins birtast eftirfarandi greinar:
- Ágúst Þór Árnason: „Lýðveldi, stjórnarskrá og þjóðaratkvæði“
- Birna Ágústsdóttir: „ICESAVE: Ber íslenska ríkið ábyrgð á grundvelli meginreglna Evrópuréttar um bann við mismunun á grundvelli ríkisfangs og bótaskyldu ríkis?“
- Gunnþóra Elín Erlingsdóttir: „The Icesave Dispute: Iceland‘s Obligations under European Law“
- Rachael Lorna Johnstone: „Iceland‘s Renaissance: Time for Comparative Law“
- Símon Sigvaldason: „Millidómstig – tálsýn eða raunveruleiki?“
- Ritdómur eftir Margréti Heinreksdóttur: Mál Mannréttindanefndar SÞ 1977-2008 – Handbók
- Ritdómur eftir Rachael Lorna Johnstone: Polar Law Textbook
- Ritdómur eftir Rachael Lorna Johnstone: The Yearbook of Polar Law
- Laganám við Háskólann á Akureyri (hluti af sjálfsmatskýrslu lagadeildar HA)
- Félagsstarf Þemis
- Lögfræðingatal 2010
Tímaritið hlaut meðal annars styrk úr Verkefnasjóði um styrk Akureyrarbæjar til Háskólans á Akureyri, frá Háskólanum á Akureyri, frá innanríkisráðuneytinu og mennta- og menningarmálaráðuneytinu. Þar að auki stóðu fjölmörg fyrirtæki við bakið á útgáfunni með auglýsingastyrkjum. Ritstjórn Lögfræðings vill nota tækifærið og þakka fyrir þessa veglegu styrki og einnig þeim sem komu að útgáfu tímaritsins.
Hægt er að fá eintak af Lögfræðingi sent að kostnaðarlausu með því að senda póst á netfangið logfraedingur@fsha.is
Þjóðaratkvæðisgreiðslan um Icesave-samningana
Lögfræðingur - 08. apríl 2011
Það styttist í að 1. tölublað 5. útgáfu Lögfræðings komi út. Vegna þjóðaratkvæðisgreiðslunnar um Icesave-samningana sem fer fram á morgun, laugardaginn 9. apríl, þykir ritstjórn Lögfræðings við hæfi að birta tvær greinar sem fjalla um Icesave-deiluna.
ICESAVE: Ber íslenska ríkið ábyrgð á grundvelli meginreglna Evrópuréttar um bann við mismunun á grundvelli ríkisfangs og bótaskyldu ríkis? – Birnar Ágústdóttir
The Icesave Dispute: Iceland‘s Obligation under European Law – Gunnþóra Elín Erlingsdóttir
Greinarnar verða aðgengilegar hér á vefsíðu Lögfræðings til mánudagsins 11. apríl, með þeim fyrirvara að enn er verið að prófarkalesa tölublaðið.
Elín Sif Kjartansdóttir
Ný vefsíða Lögfræðings
Lögfræðingur - 18. janúar 2011
Ritstjórn Lögfræðings hefur nú tekið í notkun nýja vefsíðu, sem hefur að geyma helstu upplýsingar um tímaritið. Á vefsíðunni er meðal annars að finna öll útgefin tölublöð Lögfræðings, upplýsingar um hvað þurfi meðal annars að hafa í huga við ritun greina og hvernig sé best að hafa samband við ritstjórnina. Með þessu framtaki er það einlæg von ritstjórnar Lögfræðings að gera tímaritið sýnilegra og aðgengilegra.
Fréttasafn
-
Þemis18. janúar
-
Magister18. janúar
-
Reki18. janúar
-
Stafnbúi18. janúar
-
Stafnbúi18. janúar
-
FSHA18. janúar
-
Magister18. janúar
-
FSHA18. janúar
-
FSHA18. janúar
-
FSHA18. janúar
Fréttir
-
1. tbl. 5. árg. Lögfræðings er komið út
03. maí 10:51
-
Þjóðaratkvæðisgreiðslan um Icesave-samningana
08. apríl 09:21
-
Ný vefsíða Lögfræðings
18. janúar 17:40






