Fréttir & tilkynningar

1. tbl. 5. árg. Lögfræðings er komið út

Lögfræðingur - 03. maí 2011

Lögfræðingur 2011 Út er komið tímaritið Lögfræðingur sem gefið er út á vegum Þemis, félags laganema við Háskólann á Akureyri. Þetta er í fimmta skiptið sem tímaritið er gefið út.

Í 1. tbl. 5. árg. tímaritsins birtast eftirfarandi greinar:


-          Ágúst Þór Árnason: „Lýðveldi, stjórnarskrá og þjóðaratkvæði“


-          Birna Ágústsdóttir: „ICESAVE: Ber íslenska ríkið ábyrgð á grundvelli meginreglna Evrópuréttar um bann við mismunun á grundvelli ríkisfangs og bótaskyldu ríkis?“


-          Gunnþóra Elín Erlingsdóttir: „The Icesave Dispute: Iceland‘s Obligations under European Law“


-          Rachael Lorna Johnstone: „Iceland‘s Renaissance: Time for Comparative Law“


-          Símon Sigvaldason: „Millidómstig – tálsýn eða raunveruleiki?“


-          Ritdómur eftir Margréti Heinreksdóttur: Mál Mannréttindanefndar SÞ 1977-2008 – Handbók


-          Ritdómur eftir Rachael Lorna Johnstone: Polar Law Textbook


-          Ritdómur eftir Rachael Lorna Johnstone: The Yearbook of Polar Law


-          Laganám við Háskólann á Akureyri (hluti af sjálfsmatskýrslu lagadeildar HA)


-          Félagsstarf Þemis


-          Lögfræðingatal 2010


Tímaritið hlaut meðal annars styrk úr Verkefnasjóði um styrk Akureyrarbæjar til Háskólans á Akureyri, frá Háskólanum á Akureyri, frá innanríkisráðuneytinu og mennta- og menningarmálaráðuneytinu. Þar að auki stóðu fjölmörg fyrirtæki við bakið á útgáfunni með auglýsingastyrkjum. Ritstjórn Lögfræðings vill nota tækifærið og þakka fyrir þessa veglegu styrki og einnig þeim sem komu að útgáfu tímaritsins.


Hægt er að fá eintak af Lögfræðingi sent að kostnaðarlausu með því að senda póst á netfangið logfraedingur@fsha.is


Til baka

Athugasemdir