Um Lögfræðing

Tímaritið Lögfræðingur er gefið út á vegum Þemis – félag laganema við Háskólann á Akureyri. Fyrsta tölublað tímaritsins kom út haustið 2006, og síðan þá hefur útgáfa þess verið árlegur viðburður. Nafngift tímaritsins má rekja til samnefnds rits Eyfirðingsins Helga Briem sem var gefið út á árunum 1897-1901.

Tilgangur útgáfunnar er að auka umræðu á lögfræðilegum álitaefnum sem efst eru á döfinni í íslensku þjóðlífi. Þar sem Háskólinn á Akureyri hefur lagt áherslu á alþjóðalög á grunnstigi námsins hefur ritstjórn Lögfræðings lagt upp úr því að birta greinar sem tengjast alþjóðamálum. Skilin milli innanríkismála og alþjóðamála verða stöðugt minni og býr tímaritið vel að þeim góðu tengslum sem háskólinn hefur við erlenda fræðimenn. Það er einlæg von okkar að útgáfa Lögfræðings verði góð kynning á laganámi við Háskólann á Akureyri og eigi jafnframt eftir að skipa sér fastan sess í flóru fræðirita á sviði lögfræði.

Við val á efnistökum er leitað til fræðimanna og leikmanna á sviði lögfræði, kennara og nemenda við Háskólann á Akureyri.

Lögfræðingur er gefinn út í 1.000 eintökum og er dreift án endurgjalds á allar lögmannstofur á landinu, bókasöfn, opinberar stofnanir og á aðra þá staði þar sem talið er hverju sinni að tímaritið veki athygli.

Hér má sjá eldri tölublöð Lögfræðings