Ritstjórnin
Lög Þemis um ritstjórn Lögfræðings eins og þau koma fyrir í Lögum Þemis sem samþykkt voru á aðalfundi félagsins 27. mars 2012
12. gr. Lögfræðingur er fræðirit sem starfar samkvæmt akademískum kröfum sem gerðar eru til slíkra rita, m.a eftir stigamatskerfi opinberra háskóla.
13.gr. Í ritstjórn skulu sitja 3 aðilar, ritstjóri, aðstoðarritstjóri og ritstjórnarfulltrúi.
14.gr. Ritstjóri:
a) Ritstjóri Lögfræðings stýrir útgáfu Lögfræðings, tímarits laganema við Háskólann á Akureyri, sem gefið er út á hverju skólaári. Ritstjóri er jafnframt ábyrgðarmaður útgáfunnar með þeim réttindum og skyldum sem því fylgir.
b) Ritstjóri skal skipa ritrýninefnd.
c) Ritstjóri skal tilnefna aðila úr röðum kennara við lagadeild háskólans með það hlutverk að virkja tengsl ritstjórnar Lögfræðings við tilvonandi greinahöfunda.
d) Ritstjórn skipar aðila með framhaldsmenntun í lögfræði til þess að vera til ráðgjafar um efnistök í blaðið og vera tengiliður við fræðasamfélagið.
15. gr. Aðstoðarritstjóri:
a) Aðstoðarritstjóri Lögfræðings skal vera ritstjóra innan handar í öllum málum sem snúa að ritstjórastarfinu. Ef ritstjóri getur ekki sinnt starfi sínu af einhverjum ástæðum skal aðstoðarritstjóri taka hans stað.
b) Aðstoðarritstjóri skal hafa umsjón með samskiptum ritstjórnar og stjórnar Þemis.
16.gr. Fjármálafulltrúi:
a) Fjármálafulltrúi ber ábyrgð á fjármálum Lögfræðings og skal starfa í samráði við gjaldkera Þemis.
b) Fjármálafulltrúi skal hafa yfirumsjón með fjáröflun Lögfræðings.
- Um Lögfræðing
- Ritstjórnin
- Eldri tölublöð
- Verklagsreglur
- Hafa samband
Fréttir
-
1. tbl. 5. árg. Lögfræðings er komið út
03. maí 10:51
-
Þjóðaratkvæðisgreiðslan um Icesave-samningana
08. apríl 09:21
-
Ný vefsíða Lögfræðings
18. janúar 17:40






