Verklagsreglur
Lögfræðingur er vettvangur fræðilegra greina sem tengjast lögfræði og greinum tengdum laganámi við Háskólann á Akureyri. Þær kröfur eru gerðar til greinahöfunda að þeir fari eftir vönduðum vinnubrögðum við uppsetningu greina.
Að neðan má sjá atriði sem skulu höfð í huga við skrif greina:
Öllum greinum skal skilað á word-skjali á netfangið logfraedingur@fsha.is.
Upplýsingar um skilafrest fást einnig þar. Höfundur skal láta stutta starfslýsingu fylgja grein sinni ásamt prófílmynd (sjá eldri útgáfu).
Greinar geta verið á íslensku, ensku eða dönsku. Lengd greina er miðuð við 4.000 – 5.000 orð. Hafi höfundur í huga að skrifa grein sem samrýmist ekki uppgefnum orðafjölda skal hann hafa samband við ritstjóra.
Tilvísanir til dóma, bóka, tímaritsgreina og annarra heimilda skulu ritaðar í neðanmálsgreinum. Engar formlegar reglur eru settar um tilvísanir en krafa er um að þeim fylgi vönduð vinnubrögð og samkvæmni.
Öllum fræðilegum greinum skal fylgja heimildaskrá. Heimildaskrá skal vera á aðskilinni síðu og í stafrófsröð höfunda. Krafa er um vönduð vinnubrögð og samkvæmni. Ef grein fellur ekki undir flokk fræðilegra greina er ekki sett krafa um heimildaskrá.
Ef grein fellur undir flokk fræðilegra greina mun hún vera metin efnislega af einum úr ritrýninefnd tímaritsins sem ritstjórn skipar. Ritrýnin fer fram undir nafnleynd. Ritrýninefnd er fyrst og fremst ætlað að fara yfir fræðilegt innihald greina.
Nánari upplýsingar er hægt að fá með því að senda tölvupóst á netfangið logfraedingur@fsha.is
- Um Lögfræðing
- Ritstjórnin
- Eldri tölublöð
- Verklagsreglur
- Hafa samband
Fréttir
-
1. tbl. 5. árg. Lögfræðings er komið út
03. maí 10:51
-
Þjóðaratkvæðisgreiðslan um Icesave-samningana
08. apríl 09:21
-
Ný vefsíða Lögfræðings
18. janúar 17:40






