Lög Magister, félag kennaranema, 2011
I. Nafn, markmið og félagar.
1.1. Félagið heitir Magister, félag kennaranema við Háskólann á Akureyri, með kennitöluna 620200-2550. Lögheimili þess og varnarþing er á Akureyri.
1.2. Markmið félagsins er:
a. Að gæta hagsmuna kennaranema og vera málsvari þeirra innan skóla sem utan.
b. Að vinna að aukinni samheldni meðal nemenda.
c. Að standa fyrir skemmtunum og gleðskap meðal kennaranema.
1.3. Félagar eru allir innritaðir nemendur kennaradeildar Hug- og félagsvísindasviðs við Háskólann á Akureyri, sem hafa greitt innritunargjald til skólans.
1.4. Nú leysist félagið upp og renna þá öll réttindi og skyldur til FSHA.
II. Stjórn
2.1. Í stjórn skulu sitja sjö aðilar sem gegna eftirfarandi embættum; formaður, varaformaður, gjaldkeri, skemmtanafulltrúi, íþrótta- og fjölskyldufulltrúi, meðstjórnandi og fulltrúi fyrsta árs nema.
2.2. Í stjórn sitja:
2.2.1. Hlutverk Formanns.
a) Formaður kemur fram fyrir hönd nemenda út á við. Hann skal boða til félags- og stjórnarfunda svo oft sem þess gerist þörf og verður þá eða skipar fundarstjóra. Sér einnig til þess að hin ýmsu störf dreifist á alla stjórnarmenn.
b) Formaður skal sjá til þess að lög félagsins séu uppfærð í samræmi við lagabreytingar sem samþykktar eru á aðalfundi.
c) Formaður situr deildarfundi kennaradeildar fyrir hönd nemenda og er fulltrúi Magister í Hagsmunaráði FSHA.
2.2.2. Hlutverk varaformanns.
a) Varaformaður skal vera formanni innan handar í öllum málum og gegna starfi formanns í forföllum hans.
b) Ef varaformaður getur ekki gegnt því hlutverki af einhverjum ástæðum skal annar stjórnarmeðlimur taka hans stað.
c) Varaformaður gegnir starfi ritara sem felur í sér að rita fundargerðir stjórnarfunda.
d) Færa fundargerðir inn á heimasíðu félagsins svo nemendur hafi greiðan aðgang að þeim.
e) Varaformaður er umsjónarmaður heimasíðu félagsins.
f)Varaformaður sér um gerð árskýrslu ásamt gjaldkera.
2.2.3. Hlutverk gjaldkera
a) Gjaldkeri sér um fjármál félagsins og sér til þess að yfirlit um fjármál félagsins sé reiðubúið og skilað til FSHA sé þess óskað.
b) Gjaldkeri sér um gerð árskýrslu ásamt varaformanni.
2.2.4. Hlutverk skemmtanafulltrúa
a) Skemmtanafulltrúi sér um undirbúning og skipulagningu félagsstarfs ásamt öðrum stjórnarmeðlimum.
b) Skemmtanafulltrúi situr einnig í skemmtinefnd FSHA og er fulltrúi félagsins í henni.
2.2.5. Hlutverk íþrótta- og fjölskyldufulltrúa
a) íþrótta- og fjölskyldufulltrúi sér um undirbúning og skipulagningu félagsstarfs ásamt öðrum stjórnarmeðlimum.
b) íþrótta- og fjölskyldufulltrúi situr einnig í íþrótta- og fjölskyldunefnd FSHA og er fulltrúi félagsins í henni.
2.2.6 Hlutverk meðstjórnanda
a) Meðstjórnandi sér um undirbúning og skipulagningu félagsstarfs ásamt öðrum stjórnarmeðlimum.
b) Meðstjórnandi er tengiliður við fjarnema og framhaldsdeildarnema við Kennaradeild HA.
2.2.7. Hlutverk fulltrúa fyrsta árs nema.
a) Fulltrúi fyrsta árs nema skal vera tengiliður stjórnar Magister við nemendur á sínu fyrsta ári í kennaranámi við HA.
b) Skal hann halda uppi öflugum og góðum tengslum milli stjórnar Magister og nema á fyrsta ári.
2.3. Allir stjórnarmeðlimir eru bundnir trúnaði varðandi það sem þeir kunna að heyra í félagsstarfi sínu er snertir mál einstakra nemenda.
2.4. Vantraust á meðlim stjórnar
a) Á félagsfundi getur félagsmaður borið upp vantraust á meðlim eða meðlimi stjórnar. Tillaga hans þarf að hljóta samþykki 2/3 fundarmanna til að hún nái fram að ganga enda sé a.m.k. 1/10 félagsmanna á félagsfundinum.
III. Aðalfundur
3.1. Aðalfundur skal haldinn eigi síðar en tveimur vikum eftir aðalfund FSHA. Fundinn skal auglýsa með minnst 7 daga fyrirvara á heimasíðu félagsins og með veggauglýsingum á háskólasvæðinu. Aðalfundur telst löglegur sé ofangreindum skilyrðum fullnægt.Tillögur um lagabreytingar, framboð og tilnefningar má koma með á aðalfundinum sjálfum.
3.2. Dagskrá aðalfundar er:
1. Fundur settur.
2. Kosning fundarstjóra.
3. Kosning fundarritara.
4. Skipun kjörnefndar.
5. Skýrsla formanns.
6. Skýrsla gjaldkera og afgreiðsla reikninga.
7. Lagabreytingar.
8. Kosning 6 nemenda í stjórn.
8.1 Formaður, varaformaður, gjaldkeri, skemmtanafulltrúi, íþrótta- og fjölskyldufulltrúi og meðstjórnandi
9. Önnur mál.
10. Fundi slitið.
IV. Kosningar
4.1. Hver félagsmaður hefur atkvæðisrétt og kjörgengi. Einfaldur meirihluti skal ráða niðurstöðum kosninga á aðalfundi.
4.2. Stjórn skal kosin með leynilegri kosningu eða með handaupplyftingu og sitja í eitt ár, til næsta aðalfundar. Í kosningu gildir meirihluti atkvæða. Falli atkvæði jafnt við kjör skal endurtaka kosningu milli viðkomandi frambjóðenda og falli atkvæði enn jafnt ræður hlutkesti. Sé aðeins einn frambjóðandi í kjöri telst hann sjálfkjörinn án leynilegrar kosningar.
4.3. Kjörnefnd skipuð 3 nemendum á aðalfundi skal annast skipulag og framkvæmd kosninga.
V Ýmislegt
5.1. Reikningar félagsins miðast við Aðalfund FSHA ár hvert.
5.1.1. Lausafjárstaða félagsins skal ekki veraminni en sem nemur 150.000.- kr. við stjórnarskipti. Einnig skal lausafjárstaða félagsins ekki vera hærri en því sem nemur 600.000.- kr. við stjórnarskipti. Ef lausafjárstaða er hærri en sem nemur 600.000.- kr. við stjórnarskipti getur stjórn óskað eftir undanþágu til FSHA, um að fjárframlag frá FSHA falli ekki niður næsta skólaár, ef sérstakar ástæður liggja þar að baki. Sjá nánar í lögum FSHA.
5.2. Fráfarandi stjórn skal funda með nýrri stjórn Magister innan við viku frá Aðalfundi félagsins.
5.3. Félagsfund ber að halda hvenær sem stjórnin álítur nauðsynlegt. Þá skal halda fund ef fimm eða fleiri félagsmenn æskja þess. Fundi skal að jafnaði boða með viku fyrirvara og aldrei með minna en sólarhrings fyrirvara.
5.4. Samþykktir þessar öðlast þegar gildi og verður aðeins breytt á aðalfundi.
5.5. Ákvæði til bráðabirgða.
Lög samþykkt á aðalfundi Magister 11. apríl 2011
Fréttir
-
Tilkynning um próflokadjamm!
03. maí 16:46
-
Próflokadjass Magisters
27. apríl 23:55
-
Vettvangsmiðað kennaranám
14. apríl 09:34






