Fréttir & tilkynningar

Aðalfundur REKA

Reki - 08. apríl 2010

Heil og sæl kæru félagar

Aðalfundur félags viðskiptafræðinema verður haldinn föstudagskvöldið 16. apríl næstkomandi á skemmtistaðnum Kaffi Akureyri þar sem dagskráin verður skemmtileg að vanda.

Á aðalfundi er kosið í embætti formanns, varaformanns, gjaldkera og meðstjórnanda, auk þess sem kosinn er skoðunarmaður reikninga. Á aðalfundi skulu lagabreytingartillögur bornar til atkvæða, ef einhverjar eru. - 13. grein laga 

Framboðsfrestur í embætti er til miðvikudagsins 14. apríl og lýkur honum kl 23:59. Hafi ekki borist framboð í embætti eftir þennan tíma verður hægt að bjóða sig fram í þau á fundinum sjálfum. 

Tekið er við framboðum í rafpósti á póstfangið reki@fsha.is

Tillögum um lagabreytingar skal einnig skila á sama netfang fyrir kl 14:00 næstkomandi miðvikudag.

1) Setning aðalfundar.
2) Kosning fundarstjóra og fundarritara.
3) Skýrsla formanns um liðið starfsár.
4) Skýrsla gjaldkera um liðið fjárhagsár. Reikningar bornir undir atkvæði.
5) Lagabreytingar, sbr. 19. gr.
6) Kosningar í embætti í stjórn Reka, sbr. 6. og 20. gr.
7) Kosning í embætti skoðunarmanns reikninga, sbr. 20. og 24. gr.
8) Úrslit úr kjöri í embætti tilkynnt og ný stjórn Reka kynnt.
9) Önnur mál.
10) Fundargerð aðalfundar lesin upp í lok fundar og borin undir atkvæði.
11) Aðalfundi slitið.

Fundurinn hefst kl 20:00

Til baka

Athugasemdir