Lög Reka

Kafli I – Grunnreglur félagsins

1. gr. Um félagið
Félagið heitir Reki, og er deildarfélag viðskiptafræðinema við Háskólann á Akureyri.
Félagið hefur kennitöluna 560191-2009, og er heimili þess og varnarþing á Akureyri.

2. gr. Um félagaaðild
Félagaaðild öðlast sjálfkrafa sá sem innritast til náms í viðskiptafræði við Háskólann á Akureyri.

3. gr. Tilgangur félagsins
Tilgangur Reka er þríþættur:
a) Að gæta hagsmuna félagsmanna sinna og að vera málsvari þeirra innan Háskólans og utan.
b) Að efla innbyrðis tengsl félagsmanna sinna og virkja þá til þátttöku í störfum félagsins.
c) Að efla tengsli nemenda við fyrirtæki á sviði viðskiptafræða.

4. gr. Aðild Reka að öðrum félögum
Reki er beinn aðili að Félagi stúdenta við Háskólann á Akureyri (FSHA).

5. gr. Undirfélög Reka
A-meistarinn, félag meistaranema í viðskiptafræði við Háskólann á Akureyri, á aðild að Reka sem sjálfstætt undirfélag.

Kafli II – Stjórn félagsins

6. gr. Um stjórn Reka
Stjórn Reka skal að jafnaði skipuð 5 staðarnemum og 2 fjarnemum í viðskiptafræði sem uppfylla skilyrði 2. gr. um félagaaðild. Þeir skulu gegna eftirfarandi embættum:

a) Formaður
Formaður Reka er forsvarsmaður og málsvari félagsins. Hann boðar til almennra félagsfunda, aðalfunda og stjórnarfunda Reka. Hann skal sitja þá fundi sem hafa með hagsmunamál félagsins að gera, s.s. deildarráðsfundi og fundi hagsmunaráðs. Hann er tengiliður félagsins við stjórn FSHA.
Formaður er kosinn á aðalfundi Reka ár hvert.

b) Varaformaður
Varaformaður er staðgengill formanns og er honum innan handar við daglega stjórn félagsins. Hann ritar fundargerðir félagsins og heldur utan um vefsíðu Reka og aðrar upplýsingasíður á vegum félagsins.
Varaformaður er kosinn á aðalfundi Reka ár hvert.

c) Gjaldkeri
Gjaldkeri annast fjármálastjórn og reikningsskil félagsins í samráði við stjórn (sjá nánar í 23. gr.).
Gjaldkeri er kosinn á aðalfundi Reka ár hvert.

d) Meðstjórnandi
Meðstjórnandi er kosinn á aðalfundi Reka ár hvert. Hann situr sem fulltrúi Reka í Skemmtinefnd FSHA.

e) Fulltrúi nýnema
Fulltrúi nýnema er kosinn af stjórn Reka úr hópi nýnema í byrjun haustmisseris sem tengiliður stjórnar við nýnema í viðskiptafræði. Hann er einnig meðstjórnandi og aðstoðar við stjórn félagsins.

f) Fulltrúar fjarnema
Tveir fulltrúar fjarnema eru valdir í stjórn Reka sem tengiliðir við fjarnema í viðskiptafræði. Þeim er ekki skylt að sitja fundi Reka. Fulltrúar fjarnema aðstoða stjórn Reka við skipulag Fjarnemadaga að hausti og vori.

7. gr. Aðrir tengiliðir við stjórn Reka
a) Tengliður A-meistarans
A-meistarinn, félag meistaranema í viðskiptafræði við Háskólann á Akureyri, velur sér sérstakan fulltrúa sem sinnir upplýsingaflæði milli stjórna Reka og A-meistarans. Hann á ekki sæti í stjórn Reka.

8. gr. Stjórnarfundir
Stjórnarfundir Reka eru æðsta vald félagsins milli aðalfunda, og eru þeir boðaðir af formanni þegar ástæða þykir til.
Þess er æskt að staðarnemar í stjórn Reka mæti til stjórnarfunda félagsins. Velja skal fundartíma sem flestir stjórnarmenn geta sætt sig við. Stjórnarfundur telst aðeins ályktunarbær ef hann sitja allir staðarnemar í stjórn Reka.
Að loknum fundi hefur formaður Reka samband við tengilið A-meistarans um þau mál sem að A-meistarann varðar.

9. gr. Kjörtímabil stjórnar
Stjórn Reka situr á milli aðalfunda félagsins. Stjórnarskipti skulu fara fram á fyrsta fundi Reka eftir aðalfund.

10. gr. Breytingar á stjórn
Hætti formaður í stjórn Reka skal varaformaður Reka taka við embætti formanns. Við embætti varaformanns skal þá annar stjórnarmaður taka við, að öðrum kosti skal kosið í embætti varaformanna úr röðum félagsmanna.
Hætti varaformaður eða gjaldkeri í stjórn Reka skal annar stjórnarmaður taka við, annar en formaður, að öðrum kosti skal kosið í embættið úr röðum félagsmanna.
Hætti meðstjórnandi er öðrum stjórnarmanni heimilt að taka við starfsskyldum hans, að öðrum kosti skal kosið í embættið úr röðum félagsmanna.
Hætti fulltrúi nýnema eða fjarnema í stjórn Reka skal stjórn Reka kjósa viðeigandi fulltrúa í hans stað. Ekki er skylt að manna þessar stöður, bjóði sig enginn fram í þær. Allar breytingar sem kunna að verða á stjórn Reka skulu auglýstar á vefsíðu Reka.

11. gr. Fulltrúi í kjörstjórn FSHA
Stjórn Reka skal velja 1 fulltrúa úr sínum röðum til að gegna störfum í kjörstjórn FSHA á aðalfundi þeirra. Viðkomandi má ekki sækjast eftir kjöri í stjórnarstöðu FSHA á fundinum.

12. gr. Aðrar reglur um stjórn Reka
Þeir sem kjörnir eru til trúnaðarstarfa á vegum Reka skulu ávallt gæta trúnaðar gagnvart einstaka nemendum, komi upp viðkvæm mál er að þeim snúa.
Þeim sem gegna störfum í þágu Reka er með öllu óheimilt að þiggja þóknun fyrir störf sín.

Kafli III – Aðalfundir og aðrir félagsfundir

13. gr. Hlutverk aðalfunda
Aðalfundur er æðsta vald í málefnum Reka. Á aðalfundi er kosið í embætti formanns, varaformanns, gjaldkera og meðstjórnanda, auk þess sem kosinn er skoðunarmaður reikninga. Á aðalfundi skulu lagabreytingartillögur bornar til atkvæða, ef einhverjar eru.

14. gr. Tímasetning aðalfunda
Aðalfundir Reka skulu haldnir árlega á tímabilinu 15. mars til 15. apríl. Þó er heimilt að bregða frá framangreindum dagsetningum í samráði við formann FSHA.

15. gr. Boðun aðalfunda
Auglýsa ber aðalfund í síðasta lagi 7 sólarhringum fyrir áætlaðan fundardag.
Aðalfundi skal auglýsa á auglýsingatöflum FSHA, á vefsíðu Reka og í öðrum upplýsingamiðlum á vegum félagsins.
Við boðun aðalfundar skal auglýst eftir framboðum í embætti sem tilgreind eru í 13. grein. Veita skal framboðsfrest þar til 2 sólarhringum fyrir boðaðan aðalfund.
Einnig skal auglýst eftir lagabreytingartillögum, sem berast þurfa 2 sólarhringum fyrir boðaðan aðalfund. Lagabreytingartillögur frá stjórn skulu kynntar á vefsíðu Reka við boðun aðalfundar.

16. gr. Kosningaréttur og kjörgengi á aðalfundum
Kosningarétt og eftir atvikum kjörgengi hafa þeir sem uppfylla skilyrði 2. gr. um félagaaðild.

17. gr. Lögmæti aðalfundar
Aðalfundur telst löglegur og ályktunarbær hafi hann verið boðaður skv. lögum Reka.

18. gr. Leiðbeinandi dagskrá aðalfunda
1) Setning aðalfundar.
2) Kosning fundarstjóra og fundarritara.
3) Skýrsla formanns um liðið starfsár.
4) Skýrsla gjaldkera um liðið fjárhagsár. Reikningar bornir undir atkvæði.
5) Lagabreytingar, sbr. 19. gr.
6) Kosningar í embætti í stjórn Reka, sbr. 6. og 20. gr.
7) Kosning í embætti skoðunarmanns reikninga, sbr. 20. og 24. gr.
8) Úrslit úr kjöri í embætti tilkynnt og ný stjórn Reka kynnt.
9) Önnur mál.
10) Fundargerð aðalfundar lesin upp í lok fundar og borin undir atkvæði.
11) Aðalfundi slitið.
Fundargerð aðalfundar skal liggja fyrir á vefsíðu Reka innan viku frá aðalfundi.

19. gr. Lagabreytingar á aðalfundi
Lögum Reka má eigi breyta nema á aðalfundi. 2/3 atkvæða fundargesta sem uppfylla skilyrði 2. gr. um félagaaðild þarf til að samþykkja lagabreytingartillögur.

20. gr. Kosningar í embætti á aðalfundi
Fyrst skal kosið í embætti í stjórn Reka. Kjósa skal fyrst formann, síðan varaformann, síðan gjaldkera og loks meðstjórnanda.
Þegar ný stjórn hefur verið kosin skal næst kjósa skoðunarmann reikninga (sbr. 24. gr.).
Séu 2 eða fleiri í framboði til sama embættis skal kjósa á milli þeirra með leynilegri atkvæðagreiðslu. Verði jafnt á milli efstu manna skal kosið á milli þeirra á ný. Falli atkvæði aftur á jöfnu skal hlutkesti varpað.
Hafi aðeins 1 framboð borist þegar framboðsfrestur er liðinn, þá skoðast viðkomandi sjálfkjörinn.
Hafi ekkert framboð borist fyrir aðalfund skal óskað eftir framboðum úr sal.

21. gr. Kjörstjórn á aðalfundum
Kjörstjórn skal skipuð fráfarandi stjórnarmeðlimum sem ekki óska eftir endurkjöri í embætti, minnst 3 talsins. Vanti upp á að kjörstjórn nái 3 skulu valdir félagsmenn úr sal til starfa í kjörstjórn.

22. gr. Almennir félagsfundir
Almennir félagsfundir skulu boðaðir af formanni Reka þegar þurfa þykir. Þó skal halda félagsfund óski minnst 10 félagsmenn þess skriflega. Félagsfundir skulu boðaðir með auglýsingum á korktöflum FSHA og á vefsíðu Reka, með minnst 7 daga fyrirvara, þó skal félagsfundur ekki fara fram seinna en 14 dögum eftir að áskorun barst formanni.

Kafli IV – Fjármál félagsins

23. gr. Reikningsskil
Reikningsár Reka skal miðast við tímabilið á milli aðalfunda félagsins.
Gjaldkeri skal annast reikningsskil félagsins og er ábyrgur fyrir þeim.
Skoðunarmaður reikninga skal yfirfara reikninga félagsins fyrir aðalfund Reka á hverju ári.
Reikningsskil skulu fara fram minnst 7 dögum fyrir aðalfund Reka og skal skoðunarmaður reikninga vera búinn að yfirfara reikninga félagsins. Sé aðalfundur FSHA haldinn á undan aðalfundi Reka skal gjaldkeri framkvæma bráðabirgðareikningsskil, og skal hann afhenda fjármálastjóra FSHA fjárhagsskýrslu minnst 7 dögum fyrir aðalfund FSHA.
Leitast skal við að rekstrarreikningi sé ekki skilað í tapi. Við reikningsskil er mælt með því að innistæða á sjóði sé ekki minni en kr. 200.000,-.

24. gr. Skoðunarmaður reikninga
Á aðalfundi Reka skal kosinn skoðunarmaður reikninga sem uppfyllir skilyrði 2. gr. um félagaaðild og býður sig ekki fram í stjórn Reka.
Hlutverk skoðunarmanns reikninga er að yfirfara reikninga félagsins fyrir aðalfund Reka ár hvert.

25. gr. Fjárhagslegar skuldbindingar og samningar
Gjaldkera, sem prókúruhafa félagsins, er einum heimilt að gera fjárhagslegar skuldbindingar í nafni félagsins, í samráði við stjórn Reka. Stjórn Reka getur þó veitt formanni heimild til fjárhagslegra skuldbindinga í einstaka tilvikum.
Stjórn Reka er heimilt að gera styrktar- og vöruskiptasamninga við einkafyrirtæki til að styrkja fjárhagslegan grunn Reka, enda samræmist slíkir samningar lögum Reka, brjóti ekki gegn góðum siðferðisgildum og eru ekki óeðlilega bindandi fyrir félagið.

Kafli V – Önnur starfsemi

26. gr. Málgagn Reka
Útgáfa og ritstjórn málgagns viðskiptaskorar hefur verið í höndum sérstakrar ritnefndar sem skipuð er útskriftarnemum í BS-námi í viðskiptafræði.
Hugsanlegur hagnaður af útgáfu málgagnsins skal renna óskiptur í ferðasjóð útskriftarnema í BS-námi í viðskiptafræði. Sá hópur sem stendur að útgáfu málgagnsins gæti þó orðið ábyrgur fyrir hugsanlegu tapi á útgáfu málgagnsins.

27. gr. Kynningarfundur fyrir nýnema
Stjórn Reka skal í upphafi haustmisseris halda kynningarfund fyrir nýnema til að kynna nám í viðskiptafræði, félagið Reka og starfsemi þess. Auglýsa skal eftir framboðum í embætti fulltrúa nýnema, sjá e-lið 6.gr.

Kafli VI - Annað

28. gr. Sameiningar við önnur deildarfélög
Óski önnur deildarfélög eftir sameiningu við Reka skal stjórn Reka taka afstöðu til þess. Sé það ályktun stjórnar Reka að ganga til sameiningar við önnur félög skal stjórn Reka taka afstöðu til þess. Sé það ályktun meirihluta stjórnar Reka að ganga til sameiningar við önnur félög skal stjórn Reka undirbúa lagabreytingartillögu þar að lútandi. Sé lagabreytingartillagan samþykkt á aðalfundi Reka skoðast sameiningin gild, sé lagabreytingartillagan felld skoðast sameiningin ógild.

29. gr. Slit félagsins
Aðeins má leggja félagið niður með samþykki 2/3 atkvæða á lögboðuðum aðalfundi Reka. Eigi félagið einhverjar eignir við niðurlagningu skulu þær ganga til FSHA.
Nú verður kennslu hætt í viðskiptafræði eða öðrum rekstrar- og fjármálagreinum og skal þá félagið sjálfkrafa lagt niður við útskrift síðasta árgangs í ofangreindum námsgreinum.

30. gr. Gildistaka laganna
Lög þessi voru samþykkt á aðalfundi Reka þann 27. mars 2009 og leystu af hólmi eldri lög Reka. Þeim er aðeins hægt að breyta á aðalfundi Reka, sbr. 19. gr. um lagabreytingar á aðalfundi.
Stangist lagaákvæði í lögum Reka á við lög FSHA skulu lög FSHA ráða. Gera skal viðeigandi lagaúrbætur á næsta aðalfundi.
Verði lögum FSHA breytt á þann veg að það hafi áhrif á starfsemi Reka skal stjórn Reka gera viðeigandi ráðstafanir til að mæta viðkomandi breytingum. Gera skal viðeigandi lagaúrbætur á næsta aðalfundi.