Fréttir & tilkynningar
Vísó í Arion banka
Stafnbúi - 30. janúar 2012
Núna er komið að fyrstu vísó á þessari önn krakkar mínir! Leiðin liggur í Arion banka að þessu sinni, miðvikudaginn 1. feb og er mæting þar kl 17:20. Síðan er stefnt á að fara á pizzahlaðborð á Greifanum kl 20:00 þar esm Stafnbúi greiðir niður og er því verðið á pizzahlaðborði og gosi aðeins 1000 kall!
Skráning er hérna fyrir neðan og verður að berast fyrir kl 15 á miðvikudaginn og verður að taka frem ef þið ætlið í vísó og pizzu, þannig að þeir sem komast ekki/vilja ekki fara í vísó, geta mætt á pizzhlaðborð og farið í hópferð á Amour eftirá.
Hvetjum ykkur öll til að mæta og blanda geði við fjarnemana sem eru nú á meðal vor! ;)
ATH! Þar sem Reka var boðið með okkur í skyndi, þá þarf ekki að taka mark á skráningarfrestinum! Endilega skrá sig samt svo að við sjáum cirka hvað margir eru að koma. Við hlökkum til að sjá ykkur í Arion og í pizzu á Greifanum! ;)

Stóra Vísó!
Stafnbúi - 24. janúar 2012
Jæja elsku Stafnbúarnir okkar! Hérna er loksins komin dagskráin fyrir Stóru vísindaferðina sem verður 9.-12. febrúar 2012. Við förum í allar vísindaferðirnar okkar með Rekabörnunum, svo að verum stillt ;)
Fimmtudagur 9. feb 2012
12:00 Rútan leggur af stað frá Háskólanum á Akureyri með hressum dólgum
Föstudagur 10. feb 2012
11:00 Farið í vísó í Egils
14:00 Farið í vísó í Samskip
18:00 Farið í vísó í Lýsi
Laugardagur 11. feb 2012
14:00 Farið í vísó í Óvissu
18:00 Farið í vísó í Nova
Sunnudagur 12. Feb 2012
12:00 Rútan leggur af stað heim frá Hótel Cabin með þunnum dólgum
Verð
Rútan: 5.300 kr. á mann
Gisting á Hótel Cabin í 3 nætur með morgunmat(hlaðborð):
2 manna herbergi: 8.000 kr. á mann 1 manna herbergi: 10.925 kr.
Rútan + 2 manna herbergi: 13.300 kr. á mann
Rútan + 1 manns herbergi: 16.225 kr.
Sendið skráningu í tölvupósti á stafnbui@fsha.is þar sem kemur fram:
Fullt nafn Kennitala Símanúmer Hvort að farið sé með rútunni eða ekki/aðra eða báðar leiðir Hvort gist verði á hótelinu (sem er auðvitað meira stuð!) og hvort það sé eins eða tveggja manna herbergi. Ef gist er í tveggja manna herbergi þarf að taka fram fullt nafn herbergisfélaga.Skráning og greiðsla þurfa að berast fyrir miðnætti þann 30. janúar. Greiðsluupplýsingar eru hérna fyrir neðan og verður að senda kvittun á stafnbui@fsha.is
Greiðsluupplýsingar:Reikningsnúmer: 0302-26-050580Kennitala: 650590-2529
Sushikvöld hjá Stafnbúa
Stafnbúi - 18. janúar 2012
Við vorum að spá í að prófa sushikvöld fyrir litlu sætu Stafnbúana okkar og sjá hvort að það sé eitthver áhugi fyrir því að koma saman á Borgum og smakka sushi. Hugmyndin er að hittast á Borgum eftir kvöldmat, svona um 8-9 leytið þar sem Stafnbúi splæsir í sushi smakk frá Kung Fu, en fólk kemur sjálft með drykki. Síðan halda þeir á Amour sem vilja skemmta sér frameftir kvöldi með tilheyrandi dólg! ;)
Þeir sem hafa áhuga á að fá sushi skrái sig hérna fyrir neðan fyrir kl 5 næsta miðvikdag (25. jan)! Þeir sem vilja ekki sushi eru auðvitað meira en velkomnir að hanga með okkur svo við getum fylgst að niður á Amour.
EDIT: Gleymdist að skrifa að sushi-kvöldið sjálft væri fimmtudaginn 26. jan! Smá feil, sorry guys.
Fréttasafn
-
FSHA18. janúar
-
Eir18. janúar
-
Magister18. janúar
-
Stafnbúi18. janúar
-
Eir18. janúar
-
FSHA18. janúar
-
Þemis18. janúar
-
Eir18. janúar
-
FSHA18. janúar
-
Stafnbúi18. janúar
Fréttir
-
Vísó í Arion banka
30. janúar 10:25
-
Stóra Vísó!
24. janúar 10:43
-
Sushikvöld hjá Stafnbúa
18. janúar 11:37









