Fréttir & tilkynningar

Ný stjórn og nýnemakvöld

Stafnbúi - 25. ágúst 2010

Jæja, þá er nýtt skólaár að hefjast og við í stjórninni erum farin að hlakka mikið til.

Æðstaráð Stafnbúa skipa Hafrún Dögg Hilmarsdóttir forseti, Hanna Rún Jóhannesdóttir varaforseti, Eyrún Elva Marinósdóttir fjármálastjóri, Jóhannes Hermundarson ritari, Áslaug Felixdóttir alþjóðafulltrúi og Böðvar Jónsson kynningarfulltrúi.

Okkur er það mikið í mun að sem flestir séu virkir í félagsstarfinu sem verður að vanda fjölbreytt og skemmtilegt. Við munum byrja á því að halda nýnemakvöld á Borgum þar sem í boði verða pítsur, gos og gullnar veigar og hvetjum við nýja sem gamla nemendur að mæta þangað. Í kjölfarið verður svo haldið hið árlega dorgveiðimót sem enginn Stafnbúi má missa af :) Sprellmótið fræga er fyrstu helgina í október og svo munum við reyna að hafa sem flestar vísindaferðir og annað skemmtilegt, þannig að þið skuluð undirbúa ykkur undir annasaman vetur bæði hvað varðar nám og félagslíf :)

Einnig vantar okkur nýnema í stjórnina þannig að áhugasamir geta farið að undirbúa sig en það embætti verður annars auglýst síðar.

Kveðja, Æðstaráð.

Til baka

Athugasemdir

Fréttir

Fréttasafn