Fréttir & tilkynningar

Dorgveiðimót Stafnbúa

Stafnbúi - 06. september 2010

Kæru Stafnbúar!

Á föstudaginn næstkomandi, 10. september, verður árlegt Dorgveiðimót Stafnbúa haldið. Einu reglurnar eru að venjulegar veiðistangir eru bannaðar – önglar og girni eru leyfileg, annað þarf að vera heimatilbúið! Hráefniskostnaður fyrir veiðistöng má vera allt að 1500 kr., en auðvitað má nýta allt sem hægt er að fá frítt eða lánað. Um að gera að reyna að vera með sem frumlegustu veiðistöng, en að öðru leyti er markmiðið að hún sé nothæf. Einnig er velkomið að koma niður á bryggju, fylgjast með og hvetja, og aðstoða keppendur með etanólið sem verður í boði. Dæmi um veiðarfæri undanfarin ár eru m.a. lampi, kústskaft, gítar, orf, borðtennisspaði, golfkylfa, rörasprengja, herðatré og frisbee-diskur. Á Facebook-síðu Stafnbúa má sjá nokkrar myndir frá fyrri mótum.

Keppnin hefst kl. 17 á ÚA-bryggjunni (spurjið endilega eldri nemendur ef þið ratið ekki), og lýkur kl. 19. Um kvöldið verður síðan verðlaunaafhending , almenn gleði og gullnar veigar á efri hæð Café Amour kl. 20. Vonumst til að sjá sem flesta!

 

Members of Stafnbúi!

Stafnbúi’s yearly Pier Fishing Competition will be held next Friday, September 10th. Rules of the competition are simple – no actual fishing rods! Hooks and lines are allowed, other parts must be homemade. The cost of the rod can be 1500 ISK at the most, but of course you can use everything that you can borrow or get for free! Points are for originality and fishing capacity. Of course you can also join us on the pier for encouragement and a little ethanol. Many types of fishing gear have been used the last few years, for example a lamp, a broom, a guitar, a ping-pong paddle, a golf club, clothing hangers and a Frisbee. On Stafnbúi’s Facebook page you can see a few photos from earlier competitions.

The competition begins at 5 pm at the ÚA-pier (feel free to ask us for directions), and ends at 7 pm. In the evening we will meet at Café Amour downtown at 8 pm, where the Award Ceremony will take place and some partying during and after. Hope to see you there!

 

Kv. Æðstaráð.

 

Til baka

Athugasemdir

Fréttir

Fréttasafn