Fréttir & tilkynningar

Staðar- og fjarnema hittingur

Stafnbúi - 24. október 2011

Jæja börnin góð!

Á miðvikudaginn, nánar tiltekið þann 26. október, ætlum við að gera okkur glaðan dag. við ætlum að byrja á því að fara í vísindaferð í Norðurorku kl 17:00, kl 19:00 ætlum við á pítsuhlaðborð á Greifanum og kl 21:00 mun svo hefjast pub quiz á efri hæð Amour. Norðurorka getur tekið á móti 30 manns og því þarf að skrá sig hér á síðunni. Ef færri komast að en vilja þá geta þeir sem ekki komast að í vísindaferð bara mætt niður á Greifa klukkan 19:00 í staðinn. Pítsuhlaðborðið kostar aðeins 1300 kr og þá er gos innifallið, við munum síðan bjóða upp á bjór með pub quizinu niður á Amour.

Þið megið endilega láta það fylgja með skráningunni hvort þið ætlið að mæta niður á Greifa þannig að við höfum svona einhverja hugmynd um það hvað við verðum mörg þar.

Annars hlökkum við bara til að sjá sem flesta!

Kveðja,

Stjórnin

Til baka

Athugasemdir

Fréttir

Fréttasafn