Lög félagsins
LÖG FÉLAGSINS
Samþykktir Stafnbúa (lög verða einungis sett á Aðalfundi)
1. Félagið og meðlimir
1.1. Félagið heitir STAFNBÚI og er félag nema í auðlindafræðum við Háskólann á Akureyri. Kennitala félagsins er 650590-2529 og lögheimili þess og varnarþing er á Akureyri.
1.2. Markmið félagsins er:
1. Að gæta hagsmuna nemenda í auðlindafræðum og vera málsvari þeirra innan Háskólans og utan.
2. Að efla fræðslu og auka kynni meðal nemenda deildarinnar.
3. Að efla samskipti við aðrar innlendar og erlendar stofnanir er stunda rannsóknir og/eða kennslu á þeim sviðum er tengjast greininni.
4. Að efla tengsl nemenda við auðlindatengd fyrirtæki og standa fyrir kynningu á auðlindafræðum þó einkum meðal fyrirtækja sem tengjast auðlindamálum til dæmis með útgáfu tímarits og viðgangi vefsíðu.
1.3. Allir þeir sem stunda nám og eru innritaðir í auðlindadeild Háskólans á Akureyri eru meðlimir í félaginu.
2. Kosningaréttur og kjörgengi
2.1. Kosningarétt hafa allir meðlimir félagsins. Kjörgengi til embætta hafa allir meðlimir félagsins, þó skulu þeir ekki sitja í stjórn FSHA á sama kjörtímabili.
2.2. Kosið skal til embætta með leynilegri atkvæðagreiðslu er fari fram á aðalfundi.
2.3. Starfandi stjórn annist undirbúning kosninga.
2.4. Falli atkvæði jafnt við kjör skal endurtaka kosningu milli viðkomandi frambjóðenda og falli atkvæði enn jafnt ræður hlutkesti. Sé aðeins einn frambjóðandi í kjöri skoðast hann sem sjálfkjörinn án leynilegrar kosningar.
2.5. Kosinn skal skoðunarmaður reikninga félagsins á aðalfundi, ásamt fulltrúa félagsins í skemmtinefnd FSHA og íþrótta- og fjölskyldunefnd FSHA.
3. Æðstaráðið
3.1. Æðstaráð félagsins skal skipað forseta, varaforseta, aðalritara, fjármálastjóra og einum meðstjórnanda. Meðstjórnandinn skal vera úr hópi nýnema á komandi hausti og skulu þeir sjá um kosningu hans innan fjögurra vikna frá upphafi haustannar.
3.2. Meðlimir æðstaráðs
1. Forseti boðar félags- og æðstaráðsfundi og stýrir þeim. Einnig skal yfirstjórn á daglegum rekstri vera í hans höndum. Forseti skal jafnframt vera fulltrúi félagsins í deildaráð og hagsmunaráð.
2. Varaforseti gegnir starfi forseta í hans fjarveru. Auk þess skal hann sjá um almenna kynningu námsins út á við og á starfsemi félagsins, ásamt því að vera tengiliður við erlenda nemendur félagsins.
3. Aðalritari ritar allar fundargerðir og sér um heimasíðu félagins.
4. Fjármálastjóri skal annast dagleg fjármál félagsins í samvinnu við forseta.
5. Meðstjórnandi hefur almenna stjórnarsetu og er tengiliður æðstaráðs við 1. árs nema.
3.3. Verksvið æðstaráðs er að annast alla almenna stjórn félagsins. Æðstaráði er skylt að kynna jafnan öllum nýjum félögum starf og samþykktir félagsins.
3.4. Verði meðlimur æðstaráðsins að hverfa frá störfum einhverra hluta vegna, skal boðaður félagsfundur við fyrsta tækifæri og nýr félagi kosinn í hans stað.
3.5. Æðstaráð skal skipa tengilið fjarnema, ekki seinna en fyrir fyrstu fjarnemaviku skólaársins. Hann skal vera fjarnemi og vera æðstaráði innan handar til að skipuleggja viðburði og annað tengt fjarnemavikum.
4. Félagsfundir
4.1. Aðalfundur
1. Aðalfundur skal haldinn eigi seinna en tveimur vikum eftir aðalfund FSHA ár hvert. Fundinn skal auglýsa í kennsluhúsnæði deildarinnar með sjö daga fyrirvara, auk þess skal sendur tölvupóstur á alla félaga og fundurinn auglýstur á heimasíðu félagsins.
2. Tillögur um framboð og tilnefningar skulu koma fram á aðalfundi. Tillögur um breytingar á samþykktum félagsins skulu teknar fyrir á aðalfundi og hafa borist til stjórnar áður en aðalfundur hefst. Breytingar á samþykktum félagsins skoðast samþykktar ef fyrir þeim er einfaldur meirihluti.
3. Aðalfundur telst löglegur sé löglega til hans boðað.
4.2. Dagskrá aðalfundar er:
1. Skipaður fundarstjóri er stýrir fundi og kosningum.
2. Skýrsla fráfarandi stjórnar lesin upp.
3. Reikningar lagðir fram.
4. Breytingar á samþykktum félagsins.
5. Kosning í æðstaráð og nefndir.
6. Önnur mál.
7. Nýkjörið æðstaráð tekur við störfum.
4.3. Reikningar félagsins miðast við aðalfund FSHA.
4.4. Félagsfund ber að halda hvenær sem stjórn álítur nauðsynlegt. Þá skal halda fund ef fimm eða fleiri félagsmenn æskja þess. Fundinn skal boða með þokkalegum fyrirvara.
5. Fjármál félagsins
5.1. Fjármálastjóri skal hafa yfirumsjón með öllum fjármálum félagsins og gegnir Forseti því starfi í hans fjarveru. Fjármálastjóri og Forseti skuli báðir og einir hafa prókúru á reikningum félagsins.
5.2. Fjármálastjóri skal skila uppgjöri til FSHA fjórum sinnum á skólaári.
5.3. Við aðalfund FSHA skal lausafé félagsins vera að lágmarki 180.000 kr. Jafnframt skal lausafé félagsins eftir að skólaárinu lýkur vera að lágmarki 100.000 kr.
6. Árshátíð Stafnbúa
6.1. Árshátíð Stafnbúa skal haldin að kvöldi síðasta reglulega prófdags að vori hvert skólaár.
6.2. Framkvæmd og umsjón árshátíðarinnar skal vera í höndum fráfarandi æðstaráðs en sitjandi æðstaráð skal ganga í skugga um að ekki sé farið yfir eyðslumörk (sjá grein 5.3.).
7. Ýmislegt
7.1. Samþykktir þessar öðlast þegar gildi og verður aðeins breytt á aðalfundi.
Síðast breytt 1. apríl 2011.
Fréttir
-
Tilkynning um próflokadjamm!
03. maí 16:03
-
Árshátíð Stafnbúa
29. apríl 22:06
-
Útgáfupartý!
18. apríl 17:50








