Fréttir & tilkynningar

Málfundafélagi Þemis ýtt úr vör

Þemis - 28. janúar 2012

Kæru Þemis félagar!

Í lok nóvember árið 2011 var Málfundafélag Þemis stofnað. Markmið félagsins er að halda málfundi, skipuleggja málflutningskeppnir innan lagadeildar skólans og halda utan um aðra atburði.  Í hinu nýstofnaða félagi höfum við tekið ákvörðun um að hefja starfið á skemmtilegum og spennandi málfundi! Fundurinn verður haldinn föstudaginn 3. Febrúar kl 11:00 í stofu K-201 Umræðuefni: Pyntingar – geta þær verið réttlætanlegar? Frummælendur: Henný Lind Halldórsdóttir og Húni Heiðar Hallsson Meðmælandi: Henný Lind, meistaranemi í lögfræði við Háskólann á Akureyri Mótmælandi: Húni Heiðar, sjálfstætt starfandi sérfræðingur á sviði heimskautaréttar og stundakennari við lagadeild Háskólans á Akureyri Eftir að frummælendur hafa lokið máli sínu gefst þeim tækifæri á stuttu mótsvari, að því loknu gefst gestum fundarins tækifæri á því að tjá sig um málefnið. Fundurinn tekur um klukkustund. Við vonum að sem flestir sjái sér fært að mæta á þennan fyrstu málfund – þetta verður áhugavert og skemmtilegt!

Stjórn Málfundafélag Þemis

<English version>

 

Fellow law students! Last November, Þemis founded a moot court society whose aim is to practice speeches and debates. The aim of the club is to hold debates on legal matters, moots within the faculty and other related events. We are starting the society off with a debate, which will be held at 11 o’clock, Friday the 3rd of February in classroom k-201. Topic: Torture - are they ever justifiable? Promoting the notion will be Henný Lind Halldórsdóttir, master student at the University of Akureyri. Denying the notion will be Húni Heiðar Hallsson an independent expert on polar law and a part time teacher at the University of Akureyri. After the presentation of the opposing arguments anyone can pose their own arguments on the topic.  All the best,

Stjórn Málfundafélags Þemis

 

Meira

Stofnun Málfundafélags Þemis

Þemis - 30. nóvember 2011

Í dag 30. nóvember var málfundafélag Þemis stofnað á sérstökum stofnfundi. Á fundinum var félagið formlega stofnað, hlutverk þess kynnt og bráðabirgðastjórn kjörin sem mun sitja fram að næsta aðalfundi.

Í stjórnina voru kosnir þrír einstaklingar; formaður, ritari og fjármálafulltrúi. Fjórir buðu sig fram í stjórn en kjörnir voru; Þuríður Pétursdóttir formaður, Ólöf Heiða Óskarsdóttir fjármálafulltrúi og Sigurjón Njarðarson ritari. Við óskum þeim innilega til hamingju.

 

[english version]

This morning 30th November a moot court society was established on a special initial meeting. On the meeting the society was formally established, it's role was introduced and the first board of the moot court society was elected.

Three people were elected; Þuríður Pétursdóttir chairman, Ólöf Heiða Óskarsdóttir financial manager and Sigurjón Njarðarson secretary. 

 

Kveðja, stjórn Þemis

 

Meira

Norðurslóðasamstarf Íslands og Noregs

Þemis - 13. október 2011

Jonas Gahr Støre og Ágúst Þór Árnason ásamt nemendum lagadeildar Háskólans á Akureyri

Mynd: Stefán Erlingsson. 

Þann 29. september síðastliðinn, undirrituðu Össur Skarphéðinsson, utanríkisráðherra Íslands og Jonas Gahr Støre, utanríkisráðherra Noregs, samstarfssamning milli Íslands og Noregs um norðurslóðamál. Samningurinn felur m.a. í sér að norðmenn munu kosta prófessorstöðu í norðurslóðafræðum við Háskólann á Akureyri.  Af þessu tilefni opnaði utanríkisráðherrann einnig sýningu um norska heimskautafarann og vísindamanninn  Fridtjof Nansen. Sýningin er opin öllum í nýbyggingu Háskólans á Akureyri.

Myndin að ofan er tekin í Hofi, eftir undirritun samningsins. Á henni má sjá Jonas Gahr Støre utanríkisráðherra Noregs og Ágúst Þór Árnason brautarstjóra lagadeildar Háskólans á Akureyri ásamt hópi laganema við háskólann.

Meira

Fréttasafn

2  3  4  5  6  7  8  9  10  Næsta >

Atburðir

Allir atburðir

Fréttir

Fréttasafn