Fréttir & tilkynningar

Nýnemadagar Þemis

Þemis - 16. ágúst 2011

Senn líður að skólabyrjun og er allt í fullum undirbúningi fyrir komandi vetur. Við ætlum að starta haustinu með nýnemadögum líkt og tíðkast hefur.

Almenn kynning á lagadeildinni fyrir nýju laganemana okkar verður haldin klukkan 10, þriðjudaginn 23.ágúst í stofu M-201. Allir nýnemar eru hvattir til að mæta.

Þemis heldur svo árlegt nýnemakvöld, sem að þessu sinni verður haldið á Pósthúsbarnum, 25. ágúst og hefst fjörið klukkan 20. Þar verður bjór og gos í boði ásamt smá snarli. Nýnemakvöldið er hugsað til að hrista saman hópinn og kynna bæði deildina og félagslífið frá sjónarhorni nemenda.

Eldri nemar eru einnig hvattir til að taka þátt í nýnemakvöldinu og viljum við sjá sem flesta á Pósthús um klukkan 22 þegar nýnemakynningin er búin.

 

Hlökkum til að sjá ykkur öll og njótið þess sem eftir er af sumrinu :)


Minni á facebook-síðu Þemis:

https://www.facebook.com/profile.php?id=100000248795362

Og Þemis hópinn, skráið ykkur endilega!

https://www.facebook.com/groups/163214673731984/

Til baka

Athugasemdir

Atburðir

Allir atburðir

Fréttir

Fréttasafn