Fréttir & tilkynningar
Norðurslóðasamstarf Íslands og Noregs
Þemis - 13. október 2011

Mynd: Stefán Erlingsson.
Þann 29. september síðastliðinn, undirrituðu Össur Skarphéðinsson, utanríkisráðherra Íslands og Jonas Gahr Støre, utanríkisráðherra Noregs, samstarfssamning milli Íslands og Noregs um norðurslóðamál. Samningurinn felur m.a. í sér að norðmenn munu kosta prófessorstöðu í norðurslóðafræðum við Háskólann á Akureyri.
Af þessu tilefni opnaði utanríkisráðherrann einnig sýningu um norska heimskautafarann og vísindamanninn Fridtjof Nansen. Sýningin er opin öllum í nýbyggingu Háskólans á Akureyri.
Myndin að ofan er tekin í Hofi, eftir undirritun samningsins. Á henni má sjá Jonas Gahr Støre utanríkisráðherra Noregs og Ágúst Þór Árnason brautarstjóra lagadeildar Háskólans á Akureyri ásamt hópi laganema við háskólann.
Athugasemdir
Atburðir
-
Árshátíð FSHA03. mars 18:00Þemis
-
Aðalfundur Þemis21. mars 20:01Þemis
-
Próflokadjamm FSHA09. maí 21:00Þemis
Fréttir
-
Málfundafélagi Þemis ýtt úr vör
28. janúar 18:11
-
Stofnun Málfundafélags Þemis
30. nóvember 12:39
-
Norðurslóðasamstarf Íslands og Noregs
13. október 09:57







