Fréttir & tilkynningar

Aðalfundur Þemis

Þemis - 21. mars 2012

Aðalfundur Þemis verður haldinn þann 27. mars klukkan 12 í stofu M-102 og kemur hann í stað lögfræðitorgs þá vikuna. 

 

Dagskrá fundarins fer eftir lögum Þemis og verður með eftirfarandi sniði:

1. Fundur settur.
2. Kosning fundarstjóra.
3. Kosning fundarritara.
4. Skipun kjörnefndar.
5. Skýrsla formanns.
6. Skýrsla gjaldkera og afgreiðsla reikninga.
7. Lagabreytingar.
8. Kosninga 4 nemenda í stjórn.
            8.1 Kosning formanns
            8.2 Kosning varaformanns
            8.3 Kosning fjármálastjóra
            8.4 Kosning ritara
9. Kosning í önnur embætti
            9.1 Kosning ritstjóra Lögfræðings
            9.2 Kosning aðstoðarritstjóra Lögfræðings
            9.3 Kosning ritstjórnarfulltrúa Lögfræðings
            9.4 Kosning formanns málfundafélagsins
            9.5 Kosning tveggja stjórnarmeðlima málfundafélagsins
            9.6 Kosning formanns lögfræðiráðgjafar
            9.7 Kosning tveggja stjórnarmeðlima lögfræðiráðgjafar
            9.8 Kosning skoðunarmanns reikninga
            9.9 Kosning fulltrúa Þemis í íþrótta- og fjölskyldufulltrúa
    9.10 Kosning fulltrúa Þemis í skemmtinefnd FSHA
    9.11 Kosning fulltrúa Þemis í náms- og matsnefnd lagadeildar
10. Önnur mál.
11. Stjórnarskipti.
12. Fundi slitið.

 

Líkt og sjá má hér: http://fsha.is/themis/frettir/2012/03/05/frambod-i-embaetti-themis-2012-2013/ hafa enn ekki borist framboð í nokkrar stöður sem þarf að fylla. Endilega kynnið ykkur málið og sláið til, þetta eru allt skemmtileg og mikilvæg störf fyrir lagadeildina í heild. Heimilt er að lýsa yfir framboðum á fundinum sjálfum og með því að senda póst á themis@fsha.is

Kjörgengi og kosningarétt hafa aðeins félagar Þemis.

Veitingar verða í boði fyrir fundargesti

Við vonumst eftir góðri mætingu,

 

Þemis, félag laganema við Háskólann á Akureyri

Til baka

Athugasemdir

Fréttir

Fréttasafn