Laganám við Háskólann á Akureyri
Nám við lagadeild Háskólans á Akureyri
Í lagadeild er boðið upp á nám í eftirfarandi greinum:
* Lögfræði (B.A. og M.L.)
* Lögfræði - heimskautaréttur (LL.M., M.A., Diplóma á meistarastigi og Diplóma á bakkalárstigi).
Nemendum stendur einnig til boða að taka lögfræði sem 60 eininga aukagrein til B.A.-prófs.
Námsmatið í B.A.- og M.L.- námi byggir á símati sem þýðir að námskeiðum lýkur ekki með einu stóru prófi heldur eru verkefni og hlutapróf lögð fyrir nemendur jafnt og þétt á meðan á námskeiði stendur. Það gerir nemendum kleift að fylgjast vel með eigin árangri. Námið er alþjóðatengt og er kennt bæði á íslensku og ensku. Nemendur þurfa því að búa yfir góðri ensku- og íslenskukunnáttu.
Við lagadeildina starfa einstaklingar úr röðum virtra fræðimanna, lögmanna, dómara og annarra starfandi lögfræðinga, íslenskra sem erlendra.
HÉR má sjá yfirlit yfir umsjónarkennara námskeiða, almennar upplýsingar og ritaskrá fyrir hvern og einn.
Nám til B.A.-prófs
Sjá uppbyggingu námsins
Nám í lögfræði til B.A.-prófs við Háskólann á Akureyri er fjölbreytt fræðilegt nám þar sem lög og réttur eru skoðuð í sögulegu, félagslegu og heimspekilegu samhengi. M.L.-námið byggir ofan á þennan fræðilega grunn og lögð er áhersla á að þjálfa hagnýta færni nemenda á meginsviðum íslenskrar lögfræði.
Meginmarkmið námsins er að nemendur öðlist þekkingu á undirstöðum lögfræðinnar með áherslu á lagaframkvæmd á Íslandi, í Evrópu og víðar. Nemendur læra að falla með gagnrýnum hætti um lögfræðileg málefni. Þeir þjálfast í að setja fram og skilgreina lögfræðileg álitamál og öðlast færni í faglegri og fræðilegri framsetningu lögfræðilegra viðfangsefna, bæði munnlega og skriflega, jafnt á íslensku sem ensku.
B.A.-námið er traustur grunnur fyrir framhaldsnám í lögfræði, svo sem M.L.- og LL.M.-nám við Háskólann á Akureyri. Námið nýtist einnig vel sem fræðileg undirstaða fyrir framhaldsnám í öðrum greinum eins og alþjóðasamskiptum, alþjóðastjórnmálum og skyldum greinum.
Lotukennsla
Námskeiðin í B.A.-náminu eru kennd á íslensku eða ensku af föstum kennurum deildarinnar eða gestakennurum, erlendum og innlendum. Kennararnir eru sérfræðingar hver á sínu sviði. Námskeiðin eru í þriggja vikna lotum sem þýðir að nemandi situr aðeins eitt námskeið á hverjum tíma. Svipað fyrirkomulag er í námi í heimskautarétti (LL.M.) en kennslan þar fer öll fram á ensku. Í M.L.- náminu fer kennslan að mestu fram á íslensku og skipulag námsins er með hefðbundnum hætti.
Nám til M.L.-prófs
Sjá uppbyggingu námsins
Við Háskólann á Akureyri er boðið tveggja ára nám á meistarastigi í lögfræði sem lýkur með prófgráðunni magister leges (M.L.). Sú prófgráða, í framhaldi af þriggja ára B.A.-próf í lögfræði, jafngildir hefðbundnu fimm ára námi til embættisprófs í lögfræði (cand.jur.). Áherslan í náminu er á hagnýta íslenska lögfræði, jafnt á sviði opinbers réttar, einkamálaréttar, refsiréttar og réttarfars. Þannig verða nemendur mjög vel í stakk búnir til að takast á við lögfræðistörf sem lögmenn, lögfræðingar hjá opinberum stofnunum eða einkafyrirtækjum eða dómarar. Kennslu annast fastir kennarar deildarinnar auk starfandi lögfræðinga. Námið fer fram á íslensku.
Inntökuskilyrði í meistaranám í lögfræði er B.A.-gráða í lögfræði frá HA eða önnur sambærileg prófgráða. Almennt er miðað við heildareinkunn 7 að lágmarki (eða sambærilega einkunn í öðru einkunnakerfi). Nemendur sem uppfylla ekki framangreind inntökuskilyrði geta þó sótt um í M.L.-námið og metur deildin slíkar umsóknir hverja fyrir sig.
Símat
Námsmatið byggir á símati með sama hætti og í B.A.-náminu sem þýðir að námskeiðum lýkur ekki með einu lokaprófi heldur eru verkefni, ritgerðir og hlutapróf lögð fyrir jafnt og þétt. Það krefst jafnrar ástundunar og gerir nemendum kleift að fylgjast vel með eigin árangri.
Nám í heimskautarétti
Sjá uppbyggingu námsins
Veðurfarsbreytingar eru farnar að hafa veruleg áhrif á bæði norður- og suðurskautssvæðin, hugsanleg er opnun nýrra skipaleiða, leysa þarf deilur um landamæri og markalínur hafsvæða, bæði þær deilur sem þegar eru fyrir hendi og aðrar er upp kunna að koma. Á innlendum sem alþjóðlegum vettvangi er í vaxandi mæli fjallað um viðfangsefni og álitaefni tengd stjórnun, hvort heldur er landsyfirvalda eða staðbundinna stjórnvalda og síðast en ekki síst vegna þess að umhverfisógn er mikil og hættumerki mörg sem kalla á bráðar aðgerðir. Eitt þeirra áhugaverðu rannsóknarsviða, sem námið getur lagt lið, tengist þeim lærdómi er hugsanlega má draga af því lagakerfi sem þegar er til fyrir Suðurskautslandið, við að finna lausnir fyrir norðurskautssvæðin.
Heimskautaréttur lýsir lagaumhverfi norður- og suðurskautsins. Í námsefninu er lögð áhersla á þau svið alþjóðalaga og landsréttar sem tengjast heimskautasvæðunum. Tekið er á viðfangsefnum umhverfislaga og fjölbreytni lífríkisins, mannréttinda, hafréttar, laga um sjálfbæra þróun og auðlindir, þar á meðal á álitamálum er varða fullveldi og deilur um markalínur á sjó og landi, réttindi frumbyggja í norðri, sjálfstjórn og stjórnfestu svo og landa- og auðlindakröfur á heimskautasvæðunum. Í náminu er mikið lagt upp úr alþjóðlegu samstarf við háskóla víðs vegar um heiminn. Meistaranámið við Háskólann á Akureyri er það fyrsta sinnar tegundar.
Háskólinn á Akureyri býður eftirfarandi námsleiðir í heimskautarétti:
120 eininga meistaranám sem lýkur með M.A.-gráðu
90 eininga meistaranám sem lýkur með LL.M.-gráðu (Legum Magister, meistari í lögum)
60 eininga diplómunám á meistarastigi
60 eininga diplómunám á bakkalárstigi
Að námi loknu
Meistaranám í heimskautarétti er bæði ætlað löglærðum (LL.M.) sem og þeim sem ekki hafa lagt stund á nám í lögfræði (M.A.). Nám í heimskautarétti undirbýr nemendur fyrir störf hjá opinberum aðilum sem einkafyrirtækjum, á mismunandi stigi stjórnsýslu, hjá alþjóðasamtökum, hjá frjálsum félagasamtökum, hjá frumbyggjaþjóðum á norðurskautssvæðinu sem og hjá háskólum og rannsóknarstofnunum. Meistaraprófsnámið (LL.M. og M.A.) er einnig góður undirbúningur fyrir doktors nám eða frekari rannsóknir á málefnum heimskautanna.
Allar frekari upplýsingar um laganám við Háskólann á Akureyri geta eftirtaldir aðilar veitt
Forseti hug- og félagsvísindasviðs:
Sigurður Kristinsson sími 460 8651, netfang sigkr@unak.is
Brautarstjórar lögfræði:
Ágúst Þór Árnason, agust@unak.is (umsjón með BA-náminu)
Natalia Loukacheva, sími 460 8659, natalial@unak.is (umsjón með heimskautarétti)
Þorsteinn Hjaltason, sími 460 8672, th@alhf.is (umsjón með ML-náminu)
Umsjónarmaður alþjóðasamskipta:
Markus Meclk, sími 460 8655, netfang markus@unak.is
Skrifstofustjóri:
Heiða Kristín Jónsdóttir, sími 460 8039, netfang hkj@unak.is
Fulltrúi:
Ingibjörg Smáradóttir, sími 460 8041, netfang ingibs@unak.is
Atburðir
-
Árshátíð FSHA03. mars 18:00Þemis
-
Aðalfundur Þemis21. mars 20:01Þemis
-
Próflokadjamm FSHA09. maí 21:00Þemis
Fréttir
-
Málfundafélagi Þemis ýtt úr vör
28. janúar 18:11
-
Stofnun Málfundafélags Þemis
30. nóvember 12:39
-
Norðurslóðasamstarf Íslands og Noregs
13. október 09:57







